22.07.1919
Neðri deild: 13. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 826 í C-deild Alþingistíðinda. (3381)

59. mál, bann gegn refaeldi

Sveinn Ólafsson:

Það er að eins örlítil söguleg athugasemd, sem jeg vil vera, og bendir hún til þess, að dýrbitur eystra sje fremur frá Vestfjörðum kominn en Grænlandi.

Jeg þekki að vísu þá tilgátu, að refir sjeu hingað komnir í öndverðu frá Grænlandi, og tel hana sennilega, en þótt jeg hafi búið þar, sem ísinn er tíður gestur, þá hefi jeg aldrei orðið var við refi á is, eða haft sögur af þessum grænlenska innflutningi, og hefir þó mönnum þar eystra verið oft tíðförult um ísinn og tíðrætt um veiðidýr, sem ísnum hafa fylgt, svo sem seli, birni og fugla. Þetta sannar að vísu ekki, að refir geti ekki flust með ísi, en það bendir þó sjerstaklega í aðra átt. En sögulega athugasemdin er þessi:

Fyrir 1875 var mikið um dýrbít á Austurlandi. Neyttu menn allra ráða til að uppræta þann ófögnuð. Bæði voru dýrabogar notaðir og kappsamlega unnið að grenjavinslu á vorum, eins og líka var lögð stund á að eyða slangurdýrum með skotum. En um Dyngjufjallagosið 1875 hvarf þessi faraldur með öllu á öskusvæðinu.

Eins og tekið hefir verið fram af hv. samþm. mínum (B. St.), þá tók aftur að bera á dýrbit þarna um eða litlu eftir aldamótin, fyrst á hinum efstu afrjettum, en síðar nær sjó, og hefir þessi faraldur ágerst þar síðan með ári hverju, að því er virðist í hlutfalli við aukna refarækt vestanlands.

Á árunum frá 1875 til aldamóta mun is hafa rekið að Austur- og Norðurlandi fimm eða sex sinnum. Refirnir hefðu því átt að geta komið með ísnum, og aukist þannig á öskusvæðinu löngu fyrir aldamót, en allar líkur mæla móti því, að svo hafi verið. Bendir þetta til þess, að aukningin nú standi í sambandi við refaræktina á Vesturlandi.

Hv. þm. Stranda. (M. P.) vildi sanna, að refarækt vestra gæti ekki valdið dýrbit eystra, af því að refir, sem kynnu að hafa sloppið úr eldi vestra, hefðu verið markaðir, og hlytu því að þekkjast. En gerir hann þá ráð fyrir, að afkomendur þessara mörkuðu refa erfi markið og flytji það með sjer um firn og öræfi?

Mig furðar á, að nokkur, sem dýrbit hefir kynst, skuli vilja mæla refaeldinu bót, og refnum þar með líf. Sjálfur hefi jeg sjeð svo mikið af aðgerðum þessa skemdadýrs, að jeg tel sjálfsagt að uppræta það svo fljótt, sem hægt er. Mjer er enn í bernskuminni, hve áfjáð þetta óargadýr var, er sauðamenn að vetri máttu eigi hverfa heim til máltíða frá hjörðinni, án þess það legðist á hjörðina í fjarveru hans.

Refaeldi miðar að því, að halda við stofni refanna, og má því eigi leyfast.