22.07.1919
Neðri deild: 13. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 830 í C-deild Alþingistíðinda. (3383)
59. mál, bann gegn refaeldi
Flm. (Björn R. Stefánsson):
Jeg skal ekki lengja umr. mikið, en vil þó að eins minnast á eitt atriði. Hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) hjelt því fram, að sýslunefndir ættu að setja reglur um refaveiðar, en reynslan er sú, að þær hafa ekki allar gert það, og auk þess yrði það til lítils gagns, að sumar settu reglurnar, en aðrar ekki. Þess vegna finst mjer full ástæða til, að almenn lög verði sett um þetta atriði.
Þá talaði hv. sami þm. (S. St.) um, að grenjaskytturnar skeyttu lítið um grenin af því, að þeim væri ætlað of lítið gjald í reglunum; en mjer er kunnugt um, að fyrir austan er ekkert farið eftir þessu gjaldi, heldur er borgað það, sem upp er sett, heldur en að vanrækt sje að reyna að vinna grenin.
Þá get jeg ekki verið hv. samþm. mínum (Sv. Ó.) samdóma um sögu refanna. Jeg man, að um aldamótin var töluvert um dýrbit eystra, en svo minkaði það talsvert eftir aldamótin; það er því á engan hátt hægt að setja þetta í samband við hvalveiðarnar, því að þær voru stundaðar á þeim árum, sem refa varð lítið vart, og hættar fyrir nokkrum árum áður en refaaðsóknin fór að aukast aftur.
Þá vil jeg enn vekja athygli hv. þm. Stranda. (M. P.) á því, að ef honum finst ósennilegt, að refirnir austur þar sjeu að vestan, þá hlýtur honum að finnist það enn ósennilegra, að þeir sjeu komnir frá Grænlandi.