13.08.1919
Neðri deild: 34. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 854 í C-deild Alþingistíðinda. (3396)
59. mál, bann gegn refaeldi
Pjetur Ottesen:
Af því að jeg er einn af flm. frv. þessa, sem þegar hefir verið rætt allmikið um, og útlit er fyrir að enn sje ekki útrætt, vildi jeg segja nokkur orð.
Það hefir gengið álíka vel að handsama þetta frv. og refina, því að nú hefir það verið tekið 5 eða 6 sinnum af dagskrá. Skoðanir manna eru skiftar um málið. Við flm. frv. höldum því fram, að eini vegurinn til þess að útrýma refunum sje að banna refaeldi. Aðrir telja það öruggasta ráðið, að rekin sje sem mest refarækt í landinu, enda ber breytingar- og viðaukatill. á þgskj. 323 þetta með sjer.
Við 1. umr. taldi hv. þm. Stranda. (M. P.) fyrirsögn frv. vera algert öfugmæli, því að frv. mundi leiða til þess, að refum fjölgaði. Þegar hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) fór að rökstyðja þessa staðhæfingu með honum, virtust mjer rökin snúa öfugt við henni. Ræða hans ber það með sjer, að refum hefir fjölgað á Vestfjörðum, þrátt fyrir refaræktina. Hv. þm. (S. St.) sagði, að yrðlingar hefðu verið fluttir til Vestfjarða. (S. St.: Úr Mýrasýslu). Það kemur málinu ekki við, hvaðan þeir hafa verið fluttir, þó að satt væri. En annars höfum við umsögn fleiri manna um það, hvernig refirnir vaða uppi á Vestfjörðum. (S. St.: Það eru óáreiðanlegar munnmælasögur). Jeg leyfi mjer samt að bera þær fram, í þeirri trú, að fleirum sje að trúa en hv. þm. N.-Ísf. (S. St.).
Eftir frásögn hv. þm. Barð. (H. K.) hefir dýrbítur aukist svo stórum þar í hjeraði tvö síðustu árin, að til vandræða horfir. Bændur eru í svo miklum vandræðum með fje sitt á vetrum, að fjármaðurinn verður að fylgja því stöðugt. Það kveður jafnvel svo ramt að, að refirnir elta fjenaðinn heim að húsunum. (S. St.: Það hefir verið svona frá alda öðli). Nei, þessi ófögnuður hefir farið stórum í vöxt tvö síðastliðin ár Sömu sögu segir hv. þm. Snæf. (H. St.) úr sínu hjeraði. En við höfum líka vitnisburð nágranna hv. þm. N.-Ísf. (S St.), þar sem er hv. þm. Ísaf. (M. T.). Hann segir, að einmitt síðan refaeldið hófst á Vestfjörðum hafi þeim fjölgað svo geipilega þar um slóðir, að þeir gangi jafnvel ljósum logum inn í kaupstaðinn á vetrum. (S. St.: Þeir eru ekki ferfættir). Það lítur út fyrir, að hv. þm. (S. St.) þekki tvífætta refi. Þessi vitnisburður, um ferfættu refina, kemur ekki vel heim við það, sem þm. N.-Ísf. (S. St.) hefir haldið fram.
Sömu tíðindi eru sögð úr Húnav.sýslu, og ekki er grunlaust um, að refagangurinn þar eigi að nokkru lyti kyn sitt að rekja til refa, sem grunur er á að sloppið hafi í land á ísi úr Grímsey eða Steingrímsfirði. (B. St: Sagði ekki hv. þm. Stranda. (M. P.), að refirnir kæmu aftur, þó að þeir slyppu?). Jú, það sagði hann að vísu, að þeir leituðu að holu sinni, en það er nú dálítið grunsöm staðhæfing, því að trygð tófunnar hefir ekki verið við brugðið hingað til. Auk þess getur ísa leyst skyndilega, og er þá refunum ekki afturkomu auðið, hvað sem trygðinni líður.
Það er þess vegna ljóst, að refarækt verður aldrei til að útrýma refum. Og því fráleitara er að heyra slíka staðhæfingu af vörum hv. þm. Dala. (B. J.), þar sem fullyrt er, að refir hafi sloppið þar í hjeraði úr gæslu; þrátt fyrir það flytur hv. sami þm. (B. J.) brtt. um, að refi megi rækta í eyjum og hólmum, og segist vera þar sammála kjósendum sínum. Þó er talið alveg víst, að refir hafi sloppið þar í land úr eyju einni.
Þetta kemur berlega fram í þingmálafundargerð þaðan úr sýslu, þar sem skorað er á þingið að banna alveg refaeldi.
Það getur verið, að búa megi nógu tryggilega um refina í steinþró, enda mun það vera eini vegurinn til þess að vera öruggur um, að þeir sleppi ekki. En þeir refir, sem sleppa úr haldi, verða mestu skaðræðisgripir; miklu nærgöngulli en refir eru ella. Þeir eru hættulegur bitvargur, sem snuðrar í alla króka og kima, og skjótast jafnvel inn í fjárhúsin. Það er ekki allra meðfæri að „civilisera“ refina eins vel og háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) virðist hafa tekist. Hann sagði, að þeir gengju innan um fjenaðinn á eyjunni hjá sjer, án þess að gera honum hið minsta mein. Það eru fæst hjeruð, sem eiga slíka uppeldisfeður. Hann hefir ef til vill skvett vígðu vatni á lömbin sin, svo tófan hefir ekki árætt að þeim.
Til dæmis um það, hvort refaeldið sje öruggasta ráðið til að útrýma refunum, má benda á það, að þess eru dæmi um grenjamenn, að þegar þeir komast á snoðir um, að yrðlingarnir væru svo ungir, að þeir hafa ekki treyst sjer að halda tórunni í þeim, hafa þeir yfirgefið grenin í bili, en þegar þeir hafa komið aftur að greninu, hafði tófan flutt sig og hyski sitt. Þeir hafa því komið að tómum kofunum og mist af krásinni.
Því hefir, eins og áður er sagt, verið haldið fram, að áhugi manna á grenjavinslu mundi minka, ef refarækt væri bönnuð. Jeg hygg, að hún mundi vaxa, því þá gætu menn fyrst vænst þess, að sjá einhvern árangur af útrýmingarstarfinu. En þeir, sem rækju grenjavinslu sem atvinnu, mundu ekki vilja, að refunum væri útrýmt, þeir mundu sjá hag sinn í því, að viðhalda refunum.
Þótt kaup það, sem nú er goldið fyrir grenjavinslu, sje sumstaðar lágt, eftir því, sem sjá má í fjallskilareglugerðum, mundi það ekki verða vinslunni til verulegs trafala, því að ef frv. yrði samþ., mundu sýslurnar leggja meira kapp á grenjavinslu en gert hefir verið hingað til, og gjalda grenjamönnum hærra kaup.
Hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) sagði, að Alþingi ætti ekki að setja lög um grenjavinslu, heldur ætti vinslan að vera sett í sjálfdæmi hjeraðsstjórna. Þetta gæti átt við sum hjeruð, en ekki öll. Og jeg efast fastlega um, að gengið yrði hreint til verks að útrýma refum í hjeruðum, sem ættu jafnáhrifamikla og harðvítuga refaeldispostula eins og þeir eru hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) og hv. þm. Stranda. (M. P.). Háttv. þm. Stranda. (M. P.) tók að vísu fram, að ákvæðin yrðu að vera ströng, ef grenjavinslan ætti að verða einhlít. þetta er rjett. En hv. þm. Stranda. (M. P.) hefir ekki hingað til lagt mikið upp úr ströngum lagaákvæðum.
Jeg þarf ekki að fjölyrða um ræðu hv. þm. N.-Ísf. (S. St.), þá sem hann nú flutti. Hún var að eins endurtekning á því, sem hann sagði við 1. umr. málsins. Brjefið, sem hann las upp, er mjög skilmerkilegt frá sjónarmiði refaeldismanns. Og þar sem hv. þm. sjálfur (S. St.) hefir mikinn tekjuauka af refaeldi, þá er eðlilegt, að hann vilji halda í refina sjálfs sin vegna. (S. St.: En ef jeg skyldi nú vera hættur við refaeldið?). Þótt hv. þm. (S. St.) kunni að vera hættur við það nú um stundarsakir, þá má gera ráð fyrir, að hann hyrfi að því aftur, þar sem hann hefir svo gott vald á þessum dýrum. Og jeg býst við, að fleiri mundu vekjast upp, sem vildu feta í hans fótspor.
Þá lagði háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) áherslu á það, að hlynt væri að grenjaskyttunum. En það kvað hann ekki vera aðhlynningu, að banna mönnum refaeldi. Eftir hans skilningi gætu refaskytturnar því að eins haldið iðn sinni áfram, að leyft sje refaeldi. En það væri sama sem að stuðla að því, að refunum fækki ekki í landinu. Jeg hygg, að hjer verði því að eins tryggilega um hnútana búið, að lagt sje algert bann við refarækt. Búfjenaði stendur stórhætta af þessum bitvargi Þess vegna tel jeg sjálfsagt að samþ. frv. Refaskyttunum má hlynna að á annan hátt, borga þeim vel fyrir starfa sinn og verðlauna auk þess þá, sem skara fram úr að dugnaði í því að vinna gren.
Í brtt. hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) er gert ráð fyrir því, að hreppstjóri skoði hús þau og girðingar, sem ætlaðar væru til geymslu refa. En hver á að skoða þann útbúnað hjá hreppstjóra, ef hann skyldi hafa refarækt? 1 5. lið till. er heimilað refaeldi í eyjum og hólmum. En ekki er minst á einu orði, hver eigi að hafa eftirlit með því, að refirnir sleppi ekki í land? (S.St: Það eftirlit felst í brtt. við 3 gr.). Þau ákvæði eru miðuð við girðingar á landi. (S. St.: Bóndinn á að skila belgjunum). Það er ekki full trygging, því að sumir þeirra geta verið gamlir, fyrntir frá fyrra ári o. s. frv.
Jeg vænti, að hv. deild samþ. frv. og felli brtt., sem eru fleygur í frv.