04.08.1919
Neðri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í B-deild Alþingistíðinda. (340)

33. mál, tollalög

Magnús Pjetursson:

Mjer þykir ærið kynlegt, að þm. skuli vera farnir að bera fram skriflegar brtt. Þessi aðferð er mjög óviðkunnanleg, eigi síst þar sem enginn þingfundur hefir verið haldinn í tvo daga. Þingmenn hafa því haft nægan tíma til undirbúnings. En nú rís upp hver á fætur öðrum með skriflegar brtt.

Jeg er hissa á, hve þm. hafa tekið illa breytingum þeim, sem Ed. gerði á frv. Þessi tollur á suðuspíritus er þó lítill í samanburði við þann toll, sem er á öðrum vínanda.

Nú er það sjálfsagt meiningin hjá þeim, sem vilja fella burt tollinn á brensluspíritus, að það sje vegna þess, hve nauðsynlegur hann sje til eldsneytis, en það sje ekki gert af neinni samúð við þá, sem leggja það í vana sinn að drekka hann.

En nú er það alkunnugt, að það er flutt allmikið af spíritus inn í landið í öðru skyni, sem sje í því skyni, að hafa hann í meðul, og það hygg jeg að menn verði þó að viðurkenna, að sú notkun hans sje enn nauðsynlegri en eldsneytisnotkunin, því að flestir munu telja læknislyf lífsnauðsynleg. Ætti því engu síður, nema fremur sje, að undanskilja þann spíritus tolli en hinn, skoðað frá sjónarmiði nytsemdarinnar.

Svo er annað í þessu efni. Af þeim spíritus, sem ætlast er til að 4 kr. tollur sje lagður á, er töluvert notað til iðnaðar; það mun og vera með nokkuð af brensluspíritusinum, og er líkt á komið um þessar tvær tegundir að því leyti. En þá kemur ósamræmið fram hjá þeim, sem vilja leggja 4 kr. toll á lítrann af annari tegundinni, en ekkert á hina.

Það er því miðlunarvegur, sem hv. Ed. hefir farið, þar sem hún vill leggja nokkurn toll á báðar tegundirnar, en þó helmingi lægri á brensluspíritusinn.

Jeg mun hiklaust greiða atkvæði móti hinni hjákátlegu aðferð hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), að reyna að koma að hjer í deildinni skrifaðri brtt., og fái hann því framgengt, sem ólíklegt er, þá mun jeg greiða atkvæði móti brtt. sjálfri. Það hefði verið sæmilegra af hv. þm. (G. Sv.), ef honum er mjög ant um að koma að brtt. sinni, að hann hefði leitast við að fá málið tekið út af dagskrá, en að beita þessari óvenjulegu og viðsjárverðu aðferð.

Jeg tók ekki eftir, að hv. frsm. (E. Árna.) mintist á eitt atriði þessa máls, sem þó er töluvert þýðingarmikið. Síðasta gr. frv. segir: „Lög þessi öðlast gildi þegar í stað.“ Það er því áríðandi fyrir oss, sem viljum ná sem mestum tekjum í landssjóð, að málið fái sem fyrst framgang, og að vjer forðumst að láta það hrekjast milli deildanna, en reynum að sjá til, að lögin sjeu komin í gildi áður en næstu skip koma frá útlöndum. Þetta er að minsta kosti jafnþýðingarmikil ástæða fyrir því, að oss beri að afgreiða málið nú þegar, eins og hræðslan við að hleypa því upp í efri deild aftur, af því að þar muni því verða spilt eða það felt með öllu.