02.09.1919
Efri deild: 46. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 870 í C-deild Alþingistíðinda. (3409)
59. mál, bann gegn refaeldi
Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):
Eins og sjest af nál. á þgskj. 595, leggur nefndin til, að frv. verði vísað til stjórnarinnar með rökstuddri dagskrá. Um ástæður fyrir því leyfi jeg mjer að vísa til nál., og skal jeg ekki verða til þess, að gera málið að löngu umræðuefni.