04.08.1919
Neðri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 874 í C-deild Alþingistíðinda. (3416)
108. mál, sala á prestssetrinu Hvanneyri og kirkjujörðinni Leyningi í Siglufirði
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg er ekki á móti því, að málinu sje vísað til nefndar, þótt mjer þyki það mjög ilt, að nú er farið að tíðkast að koma með svona mál algerlega óundirbúin og án þess að leitað sje áður til stjórnarvalda þeirra, sem slík mál heyra undir. Það mætti ekki minna vera en að slíkum málaleitunum fylgi nákvæm greinargerð og rökstudd um það, hve mikil nauðsyn kaupstaðarfjelaginu væri á landinu, og hve mikið það þyrfti. Jeg er með því, að bæjarfjelög fái nauðsynlegt land til umráða. En málið er ekki svo undirbúið, að tiltök sjeu, að það verði afgreitt frá þessu þingi.