04.08.1919
Neðri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í C-deild Alþingistíðinda. (3420)
108. mál, sala á prestssetrinu Hvanneyri og kirkjujörðinni Leyningi í Siglufirði
Flm. (Stefán Stefánsson):
Maður hefði síst haft ástæðu til að búast við því, að formaður allsherjarnefndar vildi ráða málinu svo skjótan dauða, að fá því nú þegar vísað til stjórnarinnar. Hann, ásamt hinum öðrum allherjarnefndarmönnum, hefir það þó í hendi sinni, að leggja það eitt til um meðferð málsins, er þeim þykir sæmilegast, Að molda málið nú þegar við 1. umr., með því að vísa því til stjórnarinnar, er svo óhæfileg meðferð, gagnvart bæjarfjelaginu, að jeg skil ekki, að það verði látið sæta slíkum úrslitum.