04.08.1919
Neðri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í C-deild Alþingistíðinda. (3421)

108. mál, sala á prestssetrinu Hvanneyri og kirkjujörðinni Leyningi í Siglufirði

Einar Arnórsson:

Hv. 1. þm. Eyf. (St. St.) þýðir ekki rjett þessa till. mina, um að vísa málinu til stjórnarinnar. Það getur einmitt orðið málinu hinn mesti gróði. Málið er ekki nægilega undirbúið enn þá, en ef það væri látið vera í höndum stjórnarinnar eitt ár, gætu allar upplýsingar fengist fyrir næsta þing, og mundi það þá fremur verða samþykt. En svo get jeg líka bent hv. þm. (St. St.) á enn aðra leið. Jeg skal ekkert um það segja, hvort salan er nauðsynleg, en ef presturinn á Siglufirði er ekki á móti sölunni, þá ætti honum ekki síður að standa á sama um það, þótt landið væri leigt bænum. Vera má að hv. þm. (St. St.) geti fallist á að ráða málinu þannig til lykta.