06.09.1919
Neðri deild: 57. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 878 í C-deild Alþingistíðinda. (3423)
108. mál, sala á prestssetrinu Hvanneyri og kirkjujörðinni Leyningi í Siglufirði
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Nefndin hefir enga afstöðu tekið til þess, hvort þessi jörð skyldi seld eða ekki. Hún leggur til, að málinu verði vísað til stjórnarinnar og hún alhugi það. Ef hún kemst að þeirri niðurstöðu, að selja beri, þá leggur hún frv. fyrir næsta þing í þá átt. Undirbúningur málsins er ekki eins góður og skyldi, og er því málinu best borgið með því, að vísa því til stjórnarinnar.
Ef Siglufirði yrði selt þetta land, þá væri erfitt að neita öðrum kauptúnum, sem kaupa vildu. Landið á víða lóðir í kauptúnum, og ef rætt er um það, hvort þær skuli selja yfirleitt eða ekki, verður málið stórmál. En þannig verður að taka það, því ekki er rjett að taka eitt kauptún út úr og selja því, án þess að hafa gert sjer það ljóst, hvort menn vilji selja yfirleitt eða ekki.
Jeg get nefnt nokkra staði, sem landið á og líkt er ástatt um og þennan. Í Skagafirði eru tveir: Sauðárkrókur og Kolkuós, í Húnavatnssýslu tveir: Blönduós og Hólanes, í Strandasýslu tveir: Borðeyri og Ingólfsfjörður. í Borgar firði Borgarnes. Á Austurlandi á ríkið einnig verðmætar eignir, t. d. á Eskifirði, og svo mætti halda áfram að telja, og síst má gleyma Vestmannaeyjum. Ef farið væri fram á að selja alt þetta, þá fer að vandast ráðið, og má ekki hrapa að því. Jeg veit, að sagt verður, að þegar hafi verið gerð undantekning, þar sem er Húsavík, og er það rjett, en jeg sje ekki, að í framtíðinni þurfi að binda sig við það frekar en verkast vill. Nefndin vill að minsta kosti stöðva þessa sölu þangað til búið er að athuga hana í heild.