06.09.1919
Neðri deild: 57. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 884 í C-deild Alþingistíðinda. (3426)
108. mál, sala á prestssetrinu Hvanneyri og kirkjujörðinni Leyningi í Siglufirði
Bjarni Jónsson:
Það var hjer lítið frv. á ferðinni um daginn, um að selja lækni mýrarblett, sem gefur af sjer 5 hesta af heyi, en getur gefið af sjer kýrfóður, ef hann er ræktaður. Þetta frv. var drepið. En nú er hjer frv. frá sparnaðarpostulum þingsins um að selja stórt og mikið land á ágætum stað, sem gefur landinu miklar tekjur, og enginn getur sagt um, hvað það kann að gefa af sjer síðar meir. Þessir sparnaðarmenn, sem ekki gátu sjeð af 9 þús. kr. til að semja orðabók yfir þeirra eigið mál, vilja nú fleygja tugum eða hundruðum þúsunda í kjördæmi sín. þannig lítur sparnaðarhlið þessara manna út, þegar kjósendahræðslan og hreppapólitíkin hafa málað hana. Jeg vildi senda sparnaðarpostulunum þessa orðsending frá orðabókinni, og vona, að aðrir verði til þess á eftir.