06.09.1919
Neðri deild: 57. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 887 í C-deild Alþingistíðinda. (3429)
108. mál, sala á prestssetrinu Hvanneyri og kirkjujörðinni Leyningi í Siglufirði
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Jeg skal ekki gera mál þetta að slíku hávaðamáli, sem hv. 1. þm. Eyf. (St. St.), enda gerist þess lítil þörf. Hvað snertir virðinguna á landinu, var hv. þm. (St. St.) mjer samdóma um, að lóðirnar mundu metnar til þess verðs, er hæfilegt þætti, þegar matið fer fram, og jeg geri ráð fyrir, að hv. þm. (St. St.) sje mjer samdóma um, að það sje meira en efasamt, hvort hagkvæmt muni fyrir ríkissjóð að selja þær því verði. Eitt áþreifanlegt dæmi þess, að málið er fremur lítið undirbúið, er það, að skjölum þeim og skilríkjum, sem fyrir bendi eru um lóðagjöldin á Siglufirði, ber ekki saman, og einmitt fyrir þær sakir fjekk hv. þm. (St. St.) símskeyti að norðan nú nýlega um málið.
Jeg segi ekki, að brjef það, sem hv. þm. (St. St.) las upp frá biskupi, hafi verið pantað, en nefndin gat að minsta kosti ekki tekið tillit til þess í nál. sínu, því henni var það ekki kunnugt fyr en eftir að hún hafði samið nál. Háttv. þm. (St. St.) sagði, að stjórnin væri málinu hlynt. Það mun vera nokkuð djúpt tekið í árinni, því að jeg man ekki betur en að þegar málið var hjer fyrst til umr. þá taldi hæstv. forsætisráðh. (J. M.) það ekki nægilega undirbúið, og taldi því rjettast að vísa því til stjórnarinnar. Mjer skilst því, að stjórnin hafi enn ekki tekið neina ákveðna afstöðu í málinu, og eins er með nefndina; hún leggur til, að því sje vísað til stjórnarinnar, til frekari athugunar.