10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 897 í C-deild Alþingistíðinda. (3436)

148. mál, stofnun verslunarskóla Íslands

Bjarni Jónsson:

Undarlegur misskilningur er það af hæstv. forsætisráðherra (J. M.), að till. um rannsókn fræðslumála ætlist til, að stjórnin láti og rannsaka fyrirkomulag sjerskóla, svo sem verslunarskóla og annara slíkra skóla. Hún nefnir það ekki á nafn. Þar eru nefndir til kennaraskóli, gagnfræðaskólar, búnaðarskólar, alþýðuskólar og auk þessara lærði skólinn, svo kallaður mentaskóli, en ekki fleiri. Er því engin ástæða til að halda, að þetta frv. komi í bága við till., eða sje óþarft hennar vegna. Að því er snertir hina skólana, þá er tilætlunin að rannsaka, hvort eigi megi breyta skipulagi þeirra til hins betra frá því, sem nú er. En hjer er um nýjan skóla að ræða, sem ekki verður rannsakað hvernig reynst hafi, heldur setur þingið hann á stofn á þann hátt, sem það hugsar að best gegni. Og þótt nú stjórninni væri falið að undirbúa þessa skólastofnun, þá er ekki víst, að miklu nær væri. Því að áður hafa verið samþ. hjer þingsályktanir, þar sem skorað var á stjórnina að láta rannsaka hin almennu fræðslumál vor og lærða skólann. Hefði sú rannsókn því nú getað verið um garð gengin, ef stjórnin hefði viljað. En henni er litt að treysta í þeim málum, því að hún er lengi að nema mál og vilja Alþingis í þeim efnum. Tvisvar hefir verið heimtuð af henni þessi rannsókn á þriggja ára fresti, og nú í þriðja sinn. Skjótleik skynjunar hjá stjórninni er því líkt farið og hjá þrem tröllum, sem þjóðsagan getur. Eitt þeirra sagði einn dag: „Mjer heyrðist hestur hneggja.“ Nú liðu hundrað ár, þá sagði annað tröllið: „Og mjer heyrðist það nú vera kýr, sem baulaði.“ Enn liðu hundrað ár. Þá sagði þriðja tröllið: „Skárri er það nú hávaðinn í ykkur!“ Hver veit nema kenslumálastjórnin reynist þeim mun fljótari til, að hún þurfi jafnmörg ár sem tröllin aldir. Stjórnin hefir ekki rumskað enn þann tveggja ára tíma, sem liðinn er síðan hún heyrði hljóð úr horni um það, að ætlast væri til, að hún rannsakaði fræðslumál þessa lands Nú hefir enn að nýju verið ýlt við henni, hvernig sem fer.

Ef til vill tekst hv. þm. S.-Þ. (P. J.) að sýna fram á það af rökvísi sinni, að það sje mesta fardagaflan að þjóta nú í það að setja upp þennan verslunarskóla, sem sýnist vera honum þyrnir í auga, og að við sjeum eigi viðbúnir. Ef til vill tekst honum að sanna oss, að betra sje að láta stjórnina undirbúa málið, og að hún hafi þá eigi á sjer snið trölla þeirra, er jeg sagði frá. En betur verður hann þá að vanda röksemdir en hingað til.

Höfuðástæða hv. þm. (P. J.) fyrir því, að við værum eigi undir það búnir að setja upp verslunarskóla, var sú, að oss vantaði kenslukrafta. Út af fyrir sig væri þetta hugsanlegt, en rjett er það þó ekki. En undarlegt er það, að sá maður, sem er hræddur um, að vanti kenslukrafta handa einum skóla, vill halda uppi tveim skólum. Ætli hann haldi þá, að auðveldara sje að fá góða kennara til tveggja skóla en til eins? Allmörg undanfarin ár hafa einstakir menn eða fjelög haldið uppi verslunarskóla hjer í Reykjavík, með nokkrum tilstyrk frá ríkinu. Hefir ekki annars heyrst getið en að góðir kenslukraftar væru við þann skóla. Aðalþrautin fyrir þann skóla hefir verið undirbúningsleysi flestra þeirra, er í skólann hafa komið. Því hefir árangur skólagöngunnar ekki getað orðið svo góður sem ella. — Á síðasta ári var settur hjer upp nýr skóli, til þess að kenna mönnum verslunarfræði, svo kallaður samvinnuskóli, og þótt undarlegt sje, þá gengust þeir menn fyrir því, sem nú kvarta mest um það, að kenslukrafta vanti, og segja, að því verði eigi komið á fót einum verslunarskóla. Mundi það vera hugsunin, að þessi skóli eigi að ala upp hæfa kennara handa ríkisverslunarskóla, og því verði að bíða með hann þangað til þeir sjeu orðnir fullnuma? Næst liggur að skilja svo alla meðferð hv. þm. (P. J.) og fjelaga hans á máli þessu. Líklega vakir fyrir þeim latneska orðtækið „docendo discimus“, við lærum á því að kenna. En þá mætti eigi síður heimfæra það upp á þá, sem nú hafa kent um alllangt skeið í verslunarskólanum, og mætti ætla, að þeir hefðu þegar lært að kenna.

En auk þess er heimurinn víður, og sjeu engir hjer á landi hæfir til að kenna við hinn fyrirhugaða verslunarskóla, þá mundi vera hægt að fá slíka kennara annarsstaðar að, svo fullkomna, sem mest þætti þurfa.

Þessar tvær ástæður hv. þm. S.-Þ. (P. J.), að undirbúningur sje ónógur undir skólastofnun þessa, og að kennara skorti, reynast þá reykur einn og hjegómi.

En þá kom hann með þá ástæðu, að fyrst ættum við að setja á stofn húsmæðraskóla, áður en við færum að hugsa um að koma upp verslunarskóla. Þar skýtur nú skökku við hjá honum. Því að þegar áður hafa verið sett lög um stofnun hans. Stendur ekki á öðru, að skóli þessi verði reistur og taki til starfa, en því, að Norðlendingar komi sjer saman um, hvar hann skal standa, en samkomulag hefir eigi fengist um það enn þá. Hv. þm. (P. J.) gerði því sjálfum sjer óleik með því, að bera þessa ástæðu fram

Hv. frsm. (M. Ó.) hefir svarað þeirri athugasemd hv. þm. (P. J.), að skóli þessi mundi reynast dýrari en þeir, sem fyrir væru, og skal jeg ekki orðlengja um það. Get þess eins, að hann mun verða þjóðinni ódýrari að mínu viti, borið saman við nytsemi hans og hinna, þótt hann kunni að verða ríkissjóði nokkrum þúsundum dýrari en þeir.

Þá færði hv. þm. (P. J.) fram þá ástæðu móti skólanum, að færri myndu sækja þennan nýja skóla en sótt hefðu hina gömlu. Það getur verið, en mjer finst það eigi skifta miklu máli. Hitt er mest um vert, að þeir menn sjeu sem best að sjer, sem eiga að gerast leiðtogar og forvígismenn í verslunarmálum vorum og stýra eiga stórum verslunarfyrirtækjum. Það er lífsnauðsyn, að verslunarstjett vor skaði eigi landið um miljónir króna ár hvert sakir fáfræði og vankunnáttu. því verður eigi neitað, að um þá sjö tugi ára, sem verslun vor hefir verið frjáls, höfum við beðið tjón, svo að hundruðum miljóna kr. skiftir, á versluninni við það, að oss hefir vantað vel mentaða og víðsýna verslunarstjett. Það hefði átt að vera eitt hið fyrsta verk vort, eftir að við fengum fjárforræði, að setja á stofn verslunarskóla. Það mundi hafa borgað þúsundfaldan ávöxt. Þm. (P. J.) hugði, að þar sem heimta ætti gagnfræðaskólamentun til undirbúnings, og síðan þrjú ár í skólanum, þá mundi mönnum hrjósa hugur við að verja þessum 6 árum til námsins. Við hinir höfum setið 12 ár og meira á skólabekk, áður en við yrðum færir til að gegna embætti, þessum feitu embættum, sem mest er um talað. Þykir okkur það því kynleg viðbára, að þeir menn, sem ætla að stunda ekki óarðvænlegri atvinnu en veislun er, muni ekki vilja vinna til að leggja á sig 6 ára nám, til þess að geta orðið hæfir til að gegna stöðunni.

Það ber lítinn vott um stórhug og framsýni hjá henni uppvaxandi kaupmannastjett og forráðamönnum hennar, ef hún vill ekki leggja á sig svo mikið, sem hjer er heimtað, til þess að afla sjer sæmilegrar þekkingar til þess að öðlast vit til að kaupa og selja á borð við stjettarbræður sína erlenda. Hver skyldi trúa því, að eigi væri meiri metnaður íslenskra kaupsýslumanna en svo, að þeir væru þess vitandi, að þeir, fyrir vankunnáttu sakir, væru hvarvetna eftirbátar viðskiftamanna sinna og keppinauta í kaupsýslu allri, og yrðu því að bera skarðan hlut frá borði, til tjóns fyrir sjálfa sig og þjóð sína. Það sæmir þeim lítt að vilja ekki stíga það spor, sem einna vissast er til að stórauðga þá og þjóðina. Hv. þm. (P. J.) var að tala um Dani og hina ágætu kveldskóla þeirra, og að margir Íslendingar hefðu látið sjer nægja að ganga í skóla þessa, og það komið þeim að góðu haldi. Þetta sannar ekki meira eða annað en að betra sje að veifa röngu trje en engu. Hitt er ósannað, hvort íslensk verslun hefði ekki haft meira gott af því, að þessir sömu menn hefðu aflað sjer meiri verslunarþekkingar. Jeg fyrir mitt leyti er sannfærður um, að svo mundi hafa orðið.

Hv. þm. (P. J.) sagði, að kaupfjelagsmenn mundu ekki ganga í þennan fyrirhugaða skóla, með öðrum orðum, mundu ekki vilja leggja á sig að verja 5–6 árum til að búa sig undir jafnvandasama stöðu sem verslunarstaðan er. þetta er undarleg kenning, að þeim eigi að ríða minna á að búa sig undir að fara vel með annara fje en sitt eigið. Kaupfjelagsstjórarnir fara þó með margra fje og ráðstafa því, en kaupmennirnir með eigið fje. Jeg gæti trúað, að hv. þm. (P. J.) fyndist jafnvel sjálfum, að hann væri tekinn að kenna viðsjárverða þjóðfjelagsfræði, þegar hann gefur sjer tíma til að rekja kenningar sínar út í æsar. Það lítur út fyrir, að hv. þm. (P. J.) sje á því, að enn haldi menn áfram að hlaupa frá orfinu og gerast forstöðumenn stórverslana, til tjóns fyrir samvinnufjelagsskapinn, og voru það þó í sannleika sumir ekki menn af lakari endanum, en þá herra vantaði þekkingu á sjálfum sjer, fólkinu og starfinu. Jeg er ekki jafnfróður í sögu samvinnufjelagsskaparins sem hv. þm. (P. J.), en þó veit jeg, að ýms kaupfjelög hafa því miður farið á höfuðið, og það orðið til að tefja fyrir hinni góðu og hollu samvinnuhreyfingu, því að það er hún, ef henni er af viti stjórnað. Eftir framkomu hv. þm. (P. J.) verð jeg að ætla, þrátt fyrir alla söguþekkingu hans, að jeg viti að sumu leyti betur en hann, hvaða þúfa hefir velt kaupfjelögunum. Það er fyrst og fremst vankunnátta forstöðumannanna; þeir hafa ekki verið menn til að stjórna fjelögunum, en í fáfræði sinni haldið, að þeir væru það. Þetta segi jeg ekki mönnunum til lasts; jeg tala hjer að eins um algengan, mannlegan sjúkdóm, sem sýkt hefir menn þessa; þeir hafa gert það, sem þeir gátu, en þeir hefðu að eins getað afrekað miklu meira, ef þeir hefðu lært starfið áður en þeir byrjuðu það. Mín aðalhvöt til þess að berjast fyrir því, að vjer kæmum upp góðum verslunarskóla, er sú, að jeg vil bjarga samvinnufjelagsskapnum frá skerjum þeim, er hann hefir steytt á, og hjálpa honum til að vinna betur en hann hefir getað hingað til. Mín viðleitni er í hag fyrir samvinnufjelagsskapinn og fyrir þjóðina alla, því að það hefir sýnt sig, að þar, sem hann er rekinn af skynsamlegu viti, þar hefir hann bætt verslunina. Hins vegar dylst mjer ekki, að kaupmenskan eigi og fullan rjett á sjer, eins og enn er háttað högum, og að hvor stefnan bæti aðra upp.

Að endingu segi jeg: Það er þúsundfaldur hagur að því, að koma upp góðum verslunarskóla, og það sem fyrst. Sje svo, að oss vanti góða kenslukrafta, eigum við að vinda bráðan bug að því, að útvega þá annarsstaðar frá, þaðan sem bestir eru. Mín niðurstaða verður því öfug við niðurstöðu hv. þm. (P. J.); honum þykir gott, að hugmyndinni sje hreyft; en hann vill bíða ein 60 ár, eða lengur, eftir því, að henni sje komið í framkvæmd. En jeg vil láta framkvæma hana þegar í stað; og illu heilli var það, að hún komst ekki í framkvæmd þegar er við fengum verslunarfrelsið.