18.07.1919
Neðri deild: 10. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í C-deild Alþingistíðinda. (3450)

58. mál, útibú Landsbanka Íslands á Vopnafirði

Flm. (Þorsteinn Jónsson):

Orsökin til þess, að þessi till. er fram komin, er áskorun þingmálafundar í Vopnafirði og víðar.

Eins og öllum mun kunnugt, eiga íbúarnir í mestallri Norðurþingeyjarsýslu og Norður-Múlasýslu mjög svo erfitt að ná til banka. — Á þessu svæði eru bæði fjölmennar og mjög kjarngóðar landbúnaðarsveitir, sem hafa mikla framleiðslu má segja, að miðsveitis sje Vopnafjörður, og á því útibúið að sjálfsögðu að vera þar. Vopnafjörður er fjölment hjerað með miklum framtíðarmöguleikum. Þar er og þorp nokkurt. Skamt frá Vopnafirði hafa á síðari árum risið upp allfjölmennar útgerðarstöðvar, svo sem á Bakkafirði og Langanesi. Jeg býst við, að sumum hv. deildarmönnum muni sýnast eins mikil þörf á bankaútibúi á ýmsum öðrum stöðum, þar sem ekkert útibú er nú, sem á Vopnafirði, og má það satt vera, enda álít jeg, að hraða verði fjölgun útibúa frá Landsbankanum og alstaðar eigi að setja þau á stofn þar, sem mikil þörf er á að fá peningastofnun. Það hlýtur að borga sig fyrir landið. Ef ekki beint, þá óbeint. Að gera mönnum hægt með að fá peninga er ein aðalundirstaða fyrir atvinnuvegina. Þau hjeruð hljóta að dragast aftur úr, sem ekki eiga greiðan aðgang að peningalánsstofnunum. Á síðari árum hefir vaknað allmikill áhugi fyrir því, að fjölga útibúunum. Finna sum hjeruð sárt til þess, hvað þau hafa orðið að sitja á hakanum með að ná í peninga, en þær sveitirnar, sem næstar hafa verið peningastofnununum, hafa notið þeirra mest. Aftur á móti mæla sumir á móti og telja fjölgun útibúa vera svo dýra. En mjer er spurn, þarf kostnaðurinn við rekstur svona smáútibúa að vera dýrari en við rekstur álíka stórra sparisjóða? Ef svo er ekki, þá virðist engin ástæða fyrir hv. þm. að hafa á móti útibúafjölgun.

Jeg vona, að hv. deild leyfi þessu máli fram að ganga, og geri það að till. minni, að því verði vísað til fjárhagsnefndar.