08.08.1919
Neðri deild: 28. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 938 í C-deild Alþingistíðinda. (3479)
116. mál, póstferðir á Vesturlandi
Pjetur Jónsson:
Jeg ætla ekkert að hafa móti þessari till. En jeg vildi að eins vekja athygli á því, að jeg tel rjettara, að svona till. sje athuguð í nefnd. Jeg hefi álitið, að það væri ekki holt eða heppilegt, að þingið færi að hlutast til um póstgöngur innan hjeraðs í smærri dráttum.
Mjer virðist hjer nú ekki um stórmikið að gera. En þar sem það er póstmeistari, sem hefir aðalyfirlitið yfir þessi mál, þá er rjettara að bera sig saman við hann, og vegurinn til þess er, að málið sje falið nefnd til athugunar. Jeg gæti líka haft lítið erindi fram að bera fyrir mitt hjerað, en vildi ekki, að það færi ókunnugt gegnum þingið, sem hlyti að vera, ef það væri ekki athugað í nefnd. En ef þessi till. færi til nefndar, gæti vel verið, að jeg bæri fram viðaukatill. við hana, að athuguðum málavöxtum.
Jeg hafði þess vegna hugsað mjer, að rjett væri að fela hv. samgöngumálanefnd að athuga þessa till.