08.08.1919
Neðri deild: 28. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 950 í C-deild Alþingistíðinda. (3484)

116. mál, póstferðir á Vesturlandi

Magnús Pjetursson:

Jeg skal vera stuttorður. það kom hvort eð er fátt nýtt fram í ræðu hv. þm. Dala. (B. J.). Það kom óbeinlínis fram í ræðu hans, að eftir breytinguna þyrftu ferðamenn nú að fá sjer sjerstaka fylgdarmenn, t. d. þeir, sem vildu ferðast úr Dölunum til Ísafjarðar eða Dölum til Borgarness. — Áður hefðu þeir getað fylgst með póstinum. Jeg hefi aldrei litið svo á, að póstar ættu að vera fylgdarmenn einstakra manna, enda þótt úr Dölunum væru; mætti þá líka segja nokkuð sama um Strandamenn og þörf þeirra til að njóta fylgdar póstsins.

Háttv. þm. (B. J.) hefir þegar viðurkent, að tveir hreppar sýslunnar hefðu sömu póstferðir og áður, og er þá ólíklegt, að úr þeim hreppum sje líka komin hin einróma áskorun um að kippa póstgöngunum í sama farið, enda vart líklegt, að þm. (B. J.) hafi gengið fyrir hvers manns dyr í Dölunum til að heyra álit manna um málið.

Háttv. þm. Barð. (H. K.) talaði um, að mjög margir í Barðastrandarsýslu væru óánægðir með breytinguna. En slíkt er ekki óánægja, heldur fordild, því hlunnindin eru alveg þau sömu og áður. Að vísu er einn hreppur í austursýslunni, sem segja má um að notið hafi góðs af fyrri póstinum fram yfir það, sem nú er. En menn í Vestur- Barðastrandarsýslu hafa enga átyllu til að vera óánægðir, því hún hefir nákvæmlega sömu póstferðirnar og hún hafði áður.

Annars skal jeg ekki tala um það, hvort jeg hafi haft áhrif á þetta mál eða ekki. Ummæli í þá átt verð jeg að skoða sem hrós, en því miður get jeg ekki tekið á móti því. Hver svo sem hefir lagfært þessar póstgöngur á þakkir skilið fyrir þær 3–1000 kr., sem hann sparar landssjóði. (H. K.: í hverju liggja þær?). Jeg hefi bent á það áður, en af því mjer er ant um, að hv. þm. (H. K.) komist í skilning um þetta, ætla jeg að hafa það yfir aftur, ef það fengi einhverju um þokað.

Á póstleiðinni milli Borgarness og Búðardals sparast 2000 kr. Þá er gert ráð fyrir, að 1500 kr. sparist á milli Staðar og Króksfjarðarness. Aukapósturinn frá Króksfjarðarnesi til Grafar fellur inn í Bíldudalspóstinn, en pósturinn frá Stað til Hólmavíkur sparast.

Ef hv. þm. (H. H.) vildi athuga þetta, þá býst jeg við, að hann gæti reiknað það út eins og hver annar. Þá talaði hv. þm. (H. K.) um það, að samhengið milli Kleifa og Stórholts slitnaði, og það er rjett. En hv. þm. (H. K.) gat þess um leið, og það var líka rjett, að póstmeistari mundi sjá um, að því yrði kipt í lag.

Viðvíkjandi ótta Vestur-Barðstrendinga, um að póstur yrði seinni vegna vegaörðugleika, þá veit jeg ekki á hvaða rökum sá ótti er bygður. Jeg býst ekki við, að leiðin sje mikið verri heldur en margt það, sem póstar fóru yfir áður, heldur yfirleitt mikið betri.

Það þýðir ekki að vera að þjarka um þetta mál hjer í deildinni; menn, sem eru því ókunnugir, geta ekki fylgst með. Sem dæmi þess má nefna, að þegar hv. þm. Barð. (H. K.) var að tala, voru að eins 4–5 þm. hjer í deildinni, og jeg býst við, að það hafi mestmegnis verið af áhugaleysi á málinu og af því, að þeir treystu sjer ekki til að fylgjast með, að þeir sýndu því þessa viðurkenningu.