16.07.1919
Neðri deild: 8. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 967 í C-deild Alþingistíðinda. (3501)

20. mál, bráðabirgðahækkun á burðargjaldi

Fjármálaráðherra (S. E.):

Jeg skal taka það fram, að samskonar frv. var hjer áður flutt af hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.), en þar sem hjer er um skattafrv. að ræða, hefi jeg nú tekið að mjer flutning þess.

En nú hefir mjer verið skýrt frá því, að póstmeistari muni koma með till. um breytingar á frv. þessu og póstgjöldum yfirleitt. Vil jeg því mælast til, að máli þessu verði frestað og frv. falið fjárhagsnefnd, og mun hún eflaust fá til meðferðar till. póstmeistara um málið.