16.07.1919
Neðri deild: 8. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 970 í C-deild Alþingistíðinda. (3503)

20. mál, bráðabirgðahækkun á burðargjaldi

Fjármálaráðherra (S. E.):

Eins og jeg tók fram áðan, var frv. þetta upprunalega flutt af hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.), en nú tók jeg að mjer flutning þess sem skattamáls. En till. póstmeistara fjalla ekki að eins um skattahliðina, heldur einnig um ýmislegt annað, vegna sjerstöðu þeirrar, sem landið hefir nú fengið.

Jeg álít rjett að vísa málinu til fjárhagsnefndar, og mun hún þá í samráði við stjórnina, og þá helst hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.), koma fram með nýtt frv.