08.07.1919
Neðri deild: 4. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 654 í B-deild Alþingistíðinda. (352)

32. mál, sala á hrossum til útlanda

Pjetur Jónsson:

Það þykir kanske rjett, af því að jeg er í útflutningsnefnd, að jeg geri nokkra grein fyrir þessu hrossasölumáli. Hæstv. atvinnumálaráðherra (S. J.) hefir nú gert grein fyrir bráðabirgðalögunum sjálfum, og þarf jeg ekki að fara út í það. Þá er bráðabirgðalögin voru út gefin, var gert ráð fyrir því, að verðið í Danmörku yrði svipað í ár og það var í fyrra. En þegar formaður útflutningsnefndar, Thor Jensen, kom til Danmerkur, fór hann að skygnast eftir um þetta mál. Enda var þá og vísað til hans um samninga fyrir landsstjórnarinnar hönd við húsmannafjelögin dönsku eða erindreka þeirra. En þá kom í ljós, að húsmannafjelögin vildu ekki gefa eins hátt verð og í fyrra, eða svo hátt verð, að líklegt væri að við gætum gengið að. Verð á hrossum í Danmörku fjell í haust sem leið, en þó einkum í vor, svo að verð á jótskum hrossum var fallið um hartnær helming. Fór þá svo, að Thor Jensen gat ekki komist að neinum samningum um verðið. Þegar sást hvað að fór um samninga við húsmannafjelögin, fór herra Thor Jensen til kaupmanna þeirra, sem að undanförnu hafa keypt hesta frá Íslandi. En þeirra ítrustu boð reyndust enn þá lakari en húsm.fjelaganna. Þá fór hann að þinga við hrossakaupmenn, sem eigi höfðu áður fengist við verslun á íslenskum hestum og fór þá svo á endanum, að samningur náðist um þau kjör, er stjórin gat felt sig við, og var útflutningsnefnd falið að gera samninginn. Hefir nú verið samið svo um, að öll þau hross, upp að 4000 er til Danmerkur fara á þessu sumri, eru seld með þessum sömu kjörum. Verðið er heldur lægra en í fyrra, munar um 70 kr. á hrossi. Og búast má við, að kostnaður verði meiri en í fyrra, svo sem heykostnaður og vinnukostnaður. En sá er munurinn til bóta, að nú er hægt að selja fleiri hross, eða að minsta kosti 4000, í stað 1000 í fyrra. Í fyrra var lágmarkið 49 þuml., en nú má fara niður í 47 þuml., og nú má selja þriggja vetra hross, en í fyrra mátti það ekki, svo að því leyti er samningurinn betri nú.

Það var eindregið álit útflutningsnefndar, að ekki væri vogandi að sleppa af þessum tilboðum, sem hún fekk best, en hún fekk þau teygð eins lengi og unt var. Alt er nú í óvissu, og meiri líkur til verðfalls. Voru því líkur til, að ekkert, eða minna en ekkert, ynnist við að draga söluna. En auk þess mátti engum tíma sleppa til þess að koma svona stórum útflutningi í verk, útvega skipakost, menn til framkvæmda, hey, haga og annað, svo alt þetta væri komið á rekspöl í miðjum júlí.

Jeg áleit mjer skylt að skýra frá þessu, áður en málið fer til nefndar.