21.07.1919
Efri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í C-deild Alþingistíðinda. (3521)
36. mál, útflutningsgjald af síld
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg bjóst við, að fremur níundi anda kalt frá hv. þm. Ak. (M. K.) á móti frv., enda kendi og nokkurs kuls þaðan. Jeg tók það fram, að hjer væri ekki nýtt mál á ferðinni, og þurfti hv. þm. (M. K.) því ekki að tala um afbrýningu. Hitt atriðið, hvort rjett sje að leggja toll á þessa árs framleiðslu, getur verið álitamál. Enginn veit, hvernig síldveiðin gengur í ár. Það getur orðið gott ár, en getur líka orðið slæmt. Það eina, sem menn vita, er það, að útlit er fyrir, að hátt verð verði á síldinni í ár.
Stjórnin hefir lagt annað frv. fyrir þingið, sem fer fram á, að síldartollurinn verði hækkaður um helming, úr 50 aurum upp í 1 krónu. Og jeg tek það fram, enn sem fyr, að ef Alþingi vill ganga inn á hærri toll á þessu ári, mun stjórnin taka vel í það, og ekkert verða athugað við það frá hennar hendi.
Það er rjett, sem hv. þm. Ak. (M. K.) sagði, að það er erfitt að segja um það, hvernig síldveiðin gengur í ár, en sama gildir um hvaða ár sem er; það er aldrei hægt að segja um, hvernig hún gengur, fyr en að síldartímanum loknum. En horfurnar eru til þess, að síldarverð verði hátt bæði í ár og næstu ár; eftirspurn verður meiri og meiri eftir íslenskri síld, og ef gengið er út frá því, að verðið verði hátt í framtíðinni, er ekki svo mjög athugavert, þótt tollurinn sje lagður á.
Það er einmitt gott fyrir síldveiðimenn að vita skattana fyrirfram, því að þá geta þeir strax reiknað með þeim, þegar þeir áætla útgerðarkostnaðinn. Frá því sjónarmiði er ekki athugavert, heldur hreint og beint sjálfsagt, að leggja skattinn á fyrirfram.
Jeg sje ekki, að í raun og veru sje nein hætta á því, að útlendingar hætti síldveiði hjer við land, og það getur verið spurning um, hvort nokkurt óhapp væri í því, þótt þeir gerðu það; jeg tel sjálfsagt, að þeir mundu halda áfram veiðum jafnt fyrir tollinn, en mjer virðist, að það gjald, sem á þá kemur, komi rjettilega niður. En jeg get ekki verið því fylgjandi, að leggja mismunandi skatt á útlendinga og Íslendinga; tel mjög vafasamt, hvort sú „pólitík“ væri hyggileg.
Hitt er annað mál, að ef við fáum svo miklar tekjur, að landssjóðurinn beri sig verulega vel, er ekki nema sjálfsagt að styrkja sjávarútveginn, sem gefur mestar tekjurnar.
Þetta eru aðaltekjugreinarnar, og öllum er ljóst, að tekjuþörfin er brýn. Jeg vona því, að Alþingi taki vel í málið og lofi frv. að ganga fram. Jeg er sannfærður um, að þessar tekjur koma svo vel niður, að ekki þurfi að bera kvíðboga fyrir, að þær mælist illa fyrir.