08.07.1919
Efri deild: 4. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í C-deild Alþingistíðinda. (3531)

12. mál, stofnun brunabótafélags Íslands

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Frumv. er borið fram til að hlynna að brunabótafjelagi Íslands. Ríkissjóður er fulltrygður, þótt frv. nái fram að ganga, og á ekki meira á hættu en áður. Legg jeg svo til, að frv. verði vísað til allsherjarnefndar.