08.07.1919
Neðri deild: 4. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 989 í C-deild Alþingistíðinda. (3535)
34. mál, heilbrigðisráð
Magnús Pjetursson:
Það er aðallega út af uppástungu hæstv. forsætisráðh. (J. M.) um nefndina, sem jeg stend upp. Jeg sje ekki ástæðu til að vísa málinu til launamálanefndar, þó að jeg eigi þar sæti. Jeg myndi að sjálfsögðu gefa þeirri nefnd, er um málið fjallaði, allar upplýsingar, þótt jeg væri utan hennar. Fyrst hjer er ekki um neina sjerstaka heilbrigðismálanefnd að ræða, þá er einsætt, að málinu sje vísað til allsherjarnefndar.
Jeg skal strax geta þess, að læknaþingið hafði málið til meðferðar og lagði á móti því, að frv. yrði samþ. — Skal jeg útvega væntanlegri nefnd allar till. læknaþingsins og rök í þessu máli og skýra fyrir henni afstöðu þess til málsins.
Það er þess vegna mín till., að frv. sje vísað til allsherjarnefndar.