17.07.1919
Neðri deild: 9. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1052 í C-deild Alþingistíðinda. (3623)

42. mál, vatnalög

Bjarni Jónsson:

Jeg vil í þetta sinn leyfa mjer að leiðrjetta ýmislegt, sem „fossanefndarmaður minni hl.“ (Sv. Ó.) sagði.

Fyrst er að geta þess, sem hv. 2. þm. Árn. (E. A.) hefir sýnt áður að ekki er á rökum bygt hjá ræðum. (Sv. Ó.), að frv. meiri hl. sje óljóst að orðalagi og grautarlegt að greinaskipun og tölusetningu. Jeg hygg flesta munu fallast á það, sem hv. 2. þm. Árn. (E. A.) benti á, að auðveldara sje að átta sig á efninu, þegar það er greint nákvæmlega í sundur í undirgreinar, heldur en ef lesandinn þyrfti að leita í löngum greinum að mismunandi efni, enda bendir hitt til, að lagasmiðurinn skilji eigi sína eigin smíð.

Þá talaði hann um erfðakenninguna hjá nágrannaþjóðunum í gær, og kom að því aftur nú, er Norðmenn gáfu einstaklingunum eignarrjett yfir vatninu árið 1887. Hann vildi halda því fram, að hv. 2. þm. Árn. (E. A.) hefði farið út á villigötur, er hann hjelt fram yfirráðarjetti ríkisins yfir vatnsaflinu. — Hv. ræðumanni (Sv. Ó.) ætti þó að vera kunnugt um, að hv. 2. þm. Árn. (E. A.) stendur ekki einn uppi með þessa skoðun. Hann getur vafalaust rekið sig á erlenda vísindamenn, sem hafa haldið fram sömu skoðun, t. d. norska lögfræðinginn Scheel og Gjelsvik ríkisrjettarfræðing. En þar sem hv. þm. (Sv. Ó.) sagði, að bestu menn hefðu komist að þeirri niðurstöðu, að vatnsaflið væri einstakra manna eign, þá er það ekki rjett, því að ýmsir mjög merkir vísindamenn hafa haldið fram gagnstæðri skoðun. En það, sem skar úr eignarrjettardeilunni í Noregi, voru eiginhagsmunir einstakra manna, sem skorti þekkingu til að greina þar rjett frá röngu, og vildu sjálfir verða eigendur vatnsins. Það er því að villa mönnum sjónir, að halda þeirri skoðun til streitu, að vatnalög Norðmanna frá 1887 sjeu að eins endurtekning frá eldri lögum. Norsk forn lög eru ekki svo frábrugðin íslenskum fornlögum, að hægt sje að byggja slíkt á þeim í þessu efni. En jafnvel þótt slíka skoðun mætti með rjettu byggja á fornum lögum Norðmanna, þá væri þó eigi sjálfsagt að svo væri hjer. Því að íslensk lög hin fornu eru miklu nákvæmari en hin norsku um vatnsnytjar. Sjest það best, ef saman eru bornar Grágás, Hákonarbók eða Járnsíða og Jónsbók. Í Grágás eru allnákvæm ákvæði um þessa hluti, en Járnsíða er samhljóða norskum lögum þess tíma og miklu ónákvæmari en Grágás. Þessu vildu Íslendingar ekki una og tóku ákvæðin aftur upp í Jónsbók.

Hv. ræðumaður (Sv. Ó.) gat og þess, að meiri hl. fossanefndar ætlaði landeigandanum ekki nema 200 hestorkur. Þennan hestorkufjölda áleit meiri hl. nægilega háan. Það er álit allra, að 1 hestorka dugi á mann til heimilisnotkunar. 200 hestorkur eru því 10 sinnum yfir þann hestorkufjölda, sem sveitarheimili með 20 manns þyrfti til notkunar. Samt heldur hv. þm. (Sv. Ó.) því fram, að 200 hestorkur nægi ekki til heimilisnotkunar. Hann getur reynt að telja sjálfum sjer trú um slíka fjarstæðu, en hann fær aldrei neinn í lið með sjer, sem veit betur.

Jeg vísa þeirri ásökun frá mjer, að rannsókn mín á eignarrjetti vatns hafi miðað að því, að losa um fallvötn, sem þegar eru seld. Fyrir mjer hefir að eins vakað að skilja lögin rjett og finna sannleikann í málinu. Spurningin um sölu fallvatna var mjer óviðkomandi á því stigi málsins. Ef jeg hefði verið fosseigandi og selt foss minn, mundi jeg hafa skammast mín og skilað aftur andvirðinu. Og ef jeg hefði keypt fossinn, mundi jeg hafa skilað honum aftur. Alþingi sker eigi úr málum milli seljanda og kaupanda, heldur dómstólarnir. Og hjer er sem annarsstaðar, að hver á við sinn sala, og gat því eigi komið til neinna mála, að fossanefndin ljeti þessi kaup til sín taka.

Þá gat hv. ræðumaður (Sv. Ó.) þess órjettar, sem kæmi fram í till. meiri hl., þar sem vatnið væri tekið af fosseigendum, sem hefðu ekki selt fossa sína, en hinir væru látnir sleppa. En þetta er fjarstæða. Rjetturinn verður eigi tekinn af þeim, sem hafa selt fossana, heldur af hinum nýju eigendum, sem þykjast vera. En það kemur málinu ekkert við, hvort þeir hafa öðlast þennan rjett með sölu eða erfðum. Ef eignarrjetturinn verður tekinn af þeim, sem eiga eftir að selja fossana, verður hann og jafnframt tekinn af útlendingum þeim, sem eignast hafa fossa. Hv. þm. (Sv. Ó.) hefir verið í fjórða víðerninu, þegar hann hugsaði þessa röksemdaleiðslu.

Þá átti hann tal við hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) um birtingu málsskjala minni hl. Sagði hann þar, að meiri hl. hefði birt málsskjöl á undan sjer. Hjer hlýtur þm. (Sv. Ó.) að eiga við þau 50 eintök, tök, sem jeg sendi nokkrum vinum mínum hjer heima og erlendis, með þeim skilaboðum, að þeir mættu ekki sýna þau nje birta, heldur bæri að líta á þau sem handrit. Jeg á nokkur eintök eftir enn þá og get með þeim sýnt og sannað, að eintök þau, sem jeg sendi, voru alls ekki látin í því skyni, að dreifa þeim út um land, enda fóru þau ekki nema í einn stað hjer á landi. — Jeg hefi ekki sent nema nokkur eintök á sjerstakan blett landsins. Er hjer því enginn samanburður, og verður hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) því að finna aðrar varnir í þessu máli, ef hann þykist þurfa að verja sig.

Hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) hefir nú hvað eftir annað endurtekið, að hann áliti, að vatnsrjettindi fylgi landi, og gerir það í því skyni, að sýna muninn á skoðun meiri og minni hl. En þetta eru vindhögg. Meiri hl. álítur líka, að vatnsrjettindi fylgi landi. Það stendur í íslenskum lögum, og skil jeg ekki, hví hinn hv. þm. (Sv. Ó.) misminnir svo, að um þetta hafi verið deilt í nefndinni. Nei, það var eignarrjetturinn á vatni, sein deilt var um, en ekki afnotarjetturinn, sá rjettur, að nota vatnið og hafa nytjar þess til heimilisþarfa, svo sem er rjettur til vatnsafls til hitunar og ljósa, rjettur til veiða, áveitu o. s. frv. Það var að eins sagt af meiri hl., að eignarrjetturinn væri í landsins eða einskis höndum, en öll þau rjettindi, sem jeg hjer nefndi, og lög leyfa, eru bundin við landið og eign landeiganda. (Sv. Ó.: Er það í 17., 51. og 54. gr.?). þetta eru vatnsrjettindin. En hugmyndir hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) eru ekki ljósari en svo um muninn á eignarrjetti og öðrum vatnsrjettindum, að hann hyggur, að öll vatnsrjettindi sjeu eins og samsöm. Hann getur ekki greint eignarrjett frá öðrum vatnsrjettindum. Það er rjett eins og menn eigi sjóinn og önnur veiðivötn, sem þeir mega veiða í, eða eigi loftið, af því að þeir mega skjóta þá fugla, er fljúga um í loftinu yfir landi þeirra. Menn sjá, að slíkt er barnaskapur.

Þá gaf sami hv. nefndarmaður (Sv.Ó.) skýrslu nokkra um störf nefndarinnar, sem ekki er alveg rjett. Það er rjett, að nefndin ritaði stjórnarráðinu og vildi gera tilkall til afrjettarvatns til handa ríkinu. En það er ekki sama sem, að allir hafi verið orðnir sammála um vatn í heimalöndum. Nefndin hafði alls ekki gert úrslitaatkvæði um það. En jeg hafði það mál til meðferðar, og var þá kominn svo langt með þá rannsókn, að jeg vissi þá, hver niðurstaða mín yrði um það atriði. En það varð ekki fyr en seinna, þegar við vissum, hver niðurstaðan var um afrjettina. Svo það er því ekki að tala um, og alls ekki rjett, að nefndin vissi þá, hver niðurstaðan yrði um heimalöndin, og því síður, að hún væri þá orðin sammála um það. Það atriði varð ekki vitað fyr en hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) klofnaði frá nefndinni og hætti samvinnu við hana út af eignarrjettarákvæðinu, sem hann virðist alls ekki skilja. Hann skilur það ekki, að það er aukaatriði. Um það þarf ekki að fjölyrða. Hv. 2. þm. Árn. (E. A.) hefir sýnt ljóst og vel, að svo er. Jeg held, að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) hafi verið okkur sammála um það í fossanefndinni, að aðalatriðið sje, hvort ríkið vill láta virkja fallvötn sin eða ekki, eða hve mikið. En það hefir hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) aldrei vefengt, að ríkisvaldið hefði rjett til að setja hvaða skorður sem það vill. Mig minnir, að hann vitnaði í sína ágætu vini, Norðmenn, sem iðruðust eftir gjöfina, sem þeir gáfu landeigendum 1887. Þeir settu raunar skorður. Strangari sjerleyfislöggjöf er ekki til. Og loks hafa þeir tekið aftur eignarrjettinn.

Hann mintist og á Mundíufjöll og löndin norðan þeirra fjalla, og kvað þau öll sjer sammála. Þó má geta þess, að Prússland hefir ráðið fram úr þessu á sama hátt og Norðmenn. Einstaklingurinn á vatnið. En með lagaákvæðum er eignarrjetturinn svo vendilega tekinn af mönnum, að þeir hafa hans engin not. Í Saxlandi hefir verið farið eins að og meiri hlutinn vill. Hafði komið fram frá stjórninni tillaga um, að ríkið tæki alt vatnið, en þingið vildi láta það vera dómstólamál. Þetta vill meiri hl., að málið verði útkljáð fyrir dómstólum, en reisa í tíma rammar skorður við því, að drepið verði þjóðernið og atvinnuvegir landsins, sem fyrir eru.

Mjer kemur nú að vísu ekki við það, sem hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) mælti til hv. 2. þm. Árn. (E. A.), út af sambandi þm. (Sv. Ó.) við tímaritið „Rjett“. En þar sem hann vildi lýsa því yfir ósleitilega, að hann væri ekki í neinu sambandi við jafnaðarmenn og alls óskyldur þeim, þá vil jeg geta þess, að hann hefir þó verið í bandalagi við þá. Það var því mjög eðlilegt, að háttv. 1. þm. Árn. (E. A.) spyrði, og var alls ekki til að gera hinum hv. þm. (Sv. Ó.) getsakir, heldur til að fá að vita vissu sína. Það er öllum vitað, að eini jafnaðarmaðurinn í þinginu hefir jafnan verið í kosningabandalagi við flokk hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.). (G. Sv.: Hann er enginn jafnaðarmaður). Er hann þá ójafnaðarmaður?

Jeg hirði nú ekki að tína til fleira af því, sem hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) hefir haldið fram, til að verja veikan málstað. Vil jeg ekki stjaka meir við hrynjandi húsi í þetta sinn.