25.07.1919
Neðri deild: 16. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1064 í C-deild Alþingistíðinda. (3641)

76. mál, vatnsorkusérleyfi

Flm. (Bjarni Jónsson):

Jeg skal leyfa mjer að láta fylgja nokkur orð frv. þessu, er við flytjum hjer sessunautarnir (B. J. og E. A.).

Fyrst skal jeg geta þess, að þá er fossanefndin var í utanför sinni síðastliðið sumar, varð jeg svo óheppinn að fá kvefpest þá, er inflúensa nefnist, er við komum í Osló. Gat jeg fyrir þá sök ekki orðið fjelögum mínum samferða, er þeir fóru að skoða fossamannvirki norður í landinu. En það var lán í óláni, að jeg kyntist þar í Osló norskum verkfræðingi, S. Kloumann að nafni. Er það maður, sem unnið hefir við flest fossafyrirtæki í Noregi, og er nú forstöðumaður einnar slíkrar stofnunar vestan til í Noregi; jeg man ekki hvar. Hann hefir stundað og lært þessi fræði og haft atvinnu af þessum rekstri, en hefir jafnan, frá því er fyrst kom til orða að virkja vötn í Noregi, ráðið mönnum til að vera mjög varkárir. Hann hefir sagt mjer, að eftir sinni reynslu, og með tilliti til mismunar á fólksfjölda í Noregi og á Íslandi, þá færi svo, að ef stofnað væri á Íslandi stórfyrirtæki í líkum stíl og í Noregi, þá gætu ekki liðið meira en 10–20 ár þar til Íslendingar hefðu mist öll tök á að halda tungu sinni og þjóðerni, og um íslenska þjóð væri þá eigi lengur að ræða þetta sagði hann mjög ótvírætt við mig, í einkasamtali.

Síðan reit hann mjer brjef það, er jeg hefi látið þýða og prenta sem greinargerð með frumvarpi því, er hjer liggur fyrir, og jeg vona, að háttvirtir þingdeildarmenn lesi með athygli. Þótt það sje varkárlega orðað, er þar undir niðri hin sama skoðun sem jeg nú hefi frá skýrt, og hann sagði mjer sjálfur í mjög ótakmörkuðum orðum.

Það er því auðsjeð, að ef við getum fallist á skoðun þessa manns, þá er það ekkert smámál, er um það er að ræða, að virkja mikla vatnsorku á Íslandi. Það er engu minna mál en málið um sjálfstæði Íslands, sem við höfum fengist við undanfarandi ár. Það var að eins barátta fyrir viðurkenningu á sjálfsögðum rjetti, sem við höfum átt. Sú viðurkenning er nú fengin. En það mál gengur ekki eins langt og djúpt og þetta mál, því að það er enn meira, ef umráð þjóðarinnar yfir landinu, þjóðerni hennar og tunga er í veði. Er því ekki hægt að hlaupa að atkvæðagreiðslu um það, rjett eins og um hrossasölu, jafnvel þótt hún geti verið allstórt fjármál. — Það verður ekkert á móti þessu.

En af því að svo er, sem jeg hjer segi um mikilvægi þessa máls, munu allir fallast á, hver nauðsyn það er, að ríkið sjálft hafi alt í hendi sjer, er víkur að stóriðnaði og vatnsorkufyrirtækjum hjer á landi. Hvernig má búast við, ef hagur einstaklinganna er þá meiri, að þeir neiti sjer um stórfje bara af því, að þeir vilja hafa vit fyrir þessari þjóð, öllum landslýð, svo að hún verði ekki yfirbuguð af erlendum innfluttum verkalýð og útlendu auðvaldi? Þess er ekki að vænta af einstökum mönnum, því að þótt menn væru svo þjóðræknir, að þeir vildu þetta gjarnan, og mætti vel vænta þess af mörgum Íslendingi, þá er ekki að búast við, að hver maður, sem umráð hefir fallvatna og vatnsorku, sje svo vitur, að hann þekki hættuna. En miklu fremur má ætla, að ríkið sjálft, stjórn þess og Alþingi, hafi betur vit á þessum hlutum og láti aldrei viðgangast, að hjer sje stofnað fyrirtæki, er haft geti þær afleiðingar, að sú þjóð, sem byggir og bygt hefir þetta land, missi tungu sina og þjóðerni og yfirráð landsins heima fyrir. Mun óhætt mega gera ráð fyrir, að þing og stjórn verði jafnaðarlega svo skipuð, að það verði að minsta kosti miklu óhættara að leggja slík vandamál undir þeirra dóm en einstakra manna. Vilji menn nú draga hjer dæmi til, þá er ekki annað en að líta í skrá þá, er hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) hefir samið og prentuð er í nefndaráliti meiri og minni hl. Má þá sjá, hver meðferð hefir verið á vatnsafli landsins undanfarið, og hvort engin ástæða sje til að óttast hættu, ef svo verður fram haldið stefnunni. Öll Þjórsá — milli fjalls og fjöru, miljón hestöfl — seld útlendum mönnum. Öll Hvítá seld, meðan fossanefndin sat á rökstólum, sumpart útlendum mönnum, en sumpart innlendum. Jeg man ekki, hvort eftir er nokkurt vatnsfall, sem virkjandi væri, sunnan lands eða norðan, sem ekki er annað tveggja, selt eða leigt. Sjá því allir, að einstökum mönnum er ekki trúandi fyrir svo miklu afli. Er þess vegna mikil hætta á ferðum þeirri þjóð, sem á mikið afl í sínu landi, en hefir ekki mátt til að nota það. Það getur Íslenska þjóðin ekki. Hana vantar vinnukraft. Þótt hún færi öll til og sneri sjer að vatnsvirkjun og stóriðju, annaði hún því ekki að hagnýta sjer alla vatnsorku í landinu. Er því ekki ofmælt það, er jeg segi um hættuna, og heldur ekki ofmælt, að þeir einstakir menn, er þykjast eiga orkuvötnin, eru ekki færir um að gæta hagsmuna landsins, ríkisins og þjóðarinnar í þessu máli.

Virðist þá ekki annað fyrir en að Alþingi setji lög, svo að ríkið hafi í hendi sjer, hvort virkja skuli fallvötn landsins eða ekki, og hve mikið virkja skuli. Þetta er það, sem jeg hefi kallað aðalatriði í þessu máli. Er í því sambandi sama, hvort menn hallast að meiri eða minni hl. fossanefndar um skilning á lögum landsins, hvort einstakir menn eiga vatnsaflið, eða enginn einn maður. Má í báðum tilfellum hafa þá sömu aðferð, að til hverrar vatnsorkuvirkjunar sem er þurfi leyfi ríkisstjórnarinnar, nema um smærri fallvötn og þar, sem sveitarfjelög virkja handa sjálfum sjer, til þess eins, að fullnægja raforkuþörf manna í hjeraðinu. Að öðru leyti gildir sama um alla virkjun í iðnaðarskyni. Allir þurfa að fá leyfi, hvort sem þeir eru innlendir eða útlendir, hvort sem þeir eiga vatn eða ekki.

Þess vegna á að heimila stjórn og þingi í hvert sinn að banna eða leyfa. Til þess eru þessi lög sett um raforkusjerleyfi. Að þessu hnígur það, er jeg sagði fyrir, er þessi mál voru til umr., að fossanefndin hefði ekki klofnað um aðalatriði málsins. Minni hl. hefir í höfuðatriðum lagt til hið sama og meiri hl., enda var háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) okkur sammála um þetta. Hygg jeg, að það reynist eigi vandi að samræma skoðanir meiri hl. og minni hl. um þessa landvörn, sem þarf til þess, að þjóðinni sje óhætt fyrir aðsókn auðmanna og erlendra fjárbrutlsmanna, sem ná vilja tökum á þessum afllindum landsins.

Í þessu sambandi er það aukaatriði. hver vatnsaflið á. En þó getur það atriði haft stór mikla þýðingu. Hugsum oss, að allar sölur á íslensku vatnsafli sje löglegar, og erlendir kaupendur sjeu rjettir eigendur vatnsaflsins, eigi vatnið, engu síður en botn og bakka Segjum svo, að sjerleyfislög nái fram að ganga, og svo skynsamlega sje að farið, að engum sje leyft að setja á stofn stóriðnað, svo neinu nemi. Hvað gera þá þessir erlendu eigendur? Vjer getum vel hugsað oss, að þeir fari til stjórnar sinnar og segi við hana: „Viltu ekki verja mig og rjett minn fyrir þessum ofríkismönnum þar norður á hala veraldar, svo að jeg fái notað mína eign eftir vild“.

Nú skyldu menn gera ráð fyrir, að þjóðin væri enn í ófriðarham, og væri þá alls ekki óhugsandi, að hún neyddi íslenska ríkið til að láta sonum sínum þetta í tje. En ef dómstólar eru látnir skera úr, þá þarf þó meiri brjóstheilindi til, ef neyða á þá íslenska ríkið til að brjóta öll sín lög, þau lög, sem gilt hafa síðan þetta land bygðist. Jeg að eins bendi á þetta, svo háttv. þm. sjái, að ekki er vert að gefa einstaklingunum þau rjettindi, sem þeir eiga ekki, eins og minni hl. vill. Og þó að gullið sje ekki mikið í fossunum á þeirra manna mælikvarða, sem stórhuga eru, þá ætti þeim þm., sem ekki tíma að veita fátækum mönnum þúsund króna styrk til nauðsynlegrar mentunar, að hrjósa hugur við að gefa þetta.

Einkum er hjer um bóndans mál og búnaðarins að ræða, því ef virkjun kemst á, þá er það búnaðurinn, sem áreiðanlega verður fyrst fyrir barðinu á stóriðnaðinum. Allir, sem vetlingi valda, mundu hverfa frá bóndanum til að leita sjer atvinnu þar. Og svo mundi eftir 5–10 ára Jörfagleði, meðan ósköpin væru að komast í kring, verða ávöxtur, er einyrkjur þyrftu að hjálpa dætrum sínum til að geyma hans. Mundi því fylgja ógleði nokkur, er landsmenn sæu, að vonirnar um framfarir og hagkvæmari lífsskilyrði af stóriðnaðarins völdum voru tálvonir einar. Iðnrekendur sitja hjer auðvitað að eins meðan þeir eru að græða og hverfa svo heim. Þess vegna skil jeg ekki, að því verði nokkurn tímann komið inn í höfuðið á nokkrum þm. eða nokkrum manni yfirleitt, að stóriðnaður sje hollari landsmönnum en landbúnaður og sjávarútvegur, sjerstaklega í landi eins og Íslandi, sem hefir svo góð fiskimið.

Vona jeg svo, að hv. deild taki frv. vel, því að stefnan í því er rjett og sjálfsögð. Vil jeg leyfa mjer að leggja til, að því verði vísað í hina sömu hv. nefnd, sem hin önnur vatnafrv. hafa farið í.