22.07.1919
Neðri deild: 13. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1074 í C-deild Alþingistíðinda. (3654)
60. mál, atvinnufrelsi
Flm. (Bjarni Jónsson):
Þetta frv., sem jeg hefi borið hjer fram, er einn af þeim liðum í framkvæmd fullveldisins, sem fjekst viðurkent með sáttmálanum í fyrra, sem með rjettu hefði mátt vænta, að stjórnin hefði frumkvæði um. En af því, að það hefir ekki komið frá henni, hefi jeg sjeð mig tilneyddan að flytja það.
Þegar Ísland nú stendur fyrir heiminum sem viðurkent fullvalda ríki, er litið til þess svo af öðrum þjóðum, að það standi eigin fótum og standi eigi lengur í skjóli Dana. Menn sækja þá þangað án þess að spyrja Dani leyfis til að njóta góðs af kostum landsins. Meðan menn hjeldu, að Danir væru skjól vort og skjöldur, litu menn svo á, að það væri synd gegn danska ríkinu að leita of mikið hingað. Þessi óbeina vörn er nú horfin, og Íslendingar verða sjálfir að verja sig og rjettindi sín í landinu. Nú mega þeir eigi gleyma kjörorði sínu, einkanlega af því, að rjettur þeirra fjekst ekki viðurkendur ókeypis. Danir hafa hjer enn í 22 ár þann rjett, er þeir hafa notið hjer áður, samkvæmt íslenskum lögum, sem vafasamt verður að telja hvort verið hafi gild, en hafa þó haft fult tog. Kjörorðið er: „Ísland handa Íslendingum“. Það má Íslendinga aldrei henda að gleyma því. (B. Sv.: Betra er seint en aldrei). Hvað er það? (B. Sv.: Að þm. Dala. (B. J.) viðurkennir það, sem hann virtist hafa gleymt í fyrra haust). Þegja skyldi þm. (B. Sv.) þeirra orða. Er þá betur, ef jeg fæ óáreittur að mæla með frv. þessu.
Ísland verður að vera handa Íslendingum, eins og jeg sagði áður, er jeg flutti annað frv., sem líka var liður í þessum landvarnaráðstöfunum. Það var frv. til laga um takmarkanir á rjetti til fasteignaráða hjer á landi.
Forðum stöðvaðist þróun þessarar þjóðar fyrir hungur og illa meðferð. Fólkinu hafði fjölgað frá landnámstíð, en nú hrundi það niður, og varð ekki meira en 38 þúsundir manna. En nú er aftur sú öld hafin, er þróunin getur byrjað á ný. Er þá einna mest í það varið, er litið er til framtíðarinnar, að Íslandi sje haldið handa Íslendingum. Öll landsins gæði og máttuleikar til framþróunar verða að geymast trúlega eftirkomendum vorum. Þegar fólkinu fjölgar, verða atvinnuvegir landsins að standa opnir þess eigin börnum. Það er vitanlegt, að fólkið er nú ekki nógu margt. En hættan er sú í landi, sem á góða landkosti, en lítinn vinnukraft, að þangað sæki útlendingar til að reka atvinnu, með líkum hætti og dönskum kaupmönnum hefir verið leyft að hafa hjer verslanir og önnur fyrirtæki, án þess að þeim væri gert að eiga hjer heima. Vilji þessir menn eiga hjer fyrirtæki og græða fje, þá er ekki til ofmikils mælst, þótt þeim sje gert, að þeir skuli eiga hjer heima.
Þetta er nú sú almenna ástæða fyrir frv. þessu. En svo hefi jeg aðra sjerstaka ástæðu, eða öllu heldur tvær. Sú er hin fyrri, að fyrst þessi umskifti urðu í fyrra, er sjálfsagt, að allar afleiðingar þeirra komi fram nú þegar. Og það, sem virðist og viðurkennist rjettmætt, ef gert er þegar, og eigi gæti talist nein móðgun við samningsþjóðina, gæti vakið óhug, ef það væri dregið og horfið að því síðar. Gæti viðureignin harðnað seinna, ef nú væri siglt áfram í sama kjölfari, en þetta tekið upp eftir 5–10 ár eða síðar.
Þegar rætt var um sambandslögin í fyrra, hafði jeg það ætíð til varnar samningunum, að með búsetuskilyrðinu mætti verja landið svo, að eigi yrði til skaða ákvæði 6. gr. sambandsl. Var þetta líka tekið fram af hv. sessunaut mínum (E. A.), og sama höfðum við báðir í nál. meiri hl. Og endirinn varð líka sá, að alt var samþykt á þinginu mótmælalaust, utan mótmæla þess hv. þm. (B. Sv.), er áður tók fram í fyrir mjer. — Hann áleit þetta ákvæði 6. gr. hættulegt. En þingið fjelst alt á fyrnefnda höfuðástæðu gegn mótbárum þeirra, er vildu láta aftur ganga kaupin. En þar sem nú bæði frsm. málsins, nefndin og alt þingið hafa fallist á þetta sem höfuðvörn, svo að óhætt væri að ganga að samningnum, þá liggur í þessari meðferð þingsins á málinu ekki að eins viðurkenning þess, að þetta sje máttuleiki, sje samkv. samningnum leyfilegt, heldur liggur og þar í loforð til þjóðarinnar, að þessu búsetuskilyrði skuli beitt, jafnskjótt og fullveldið kemst til framkvæmda. Það er fyrirheit þingsins, að það eigi að eins sjái þennan veg, heldur skuli og fara hann. Jeg gat því ekki annað en borið frv. þetta fram, af því að jeg stóð svo sjerstaklega í deilum um þetta atriði í fyrra. Taldi jeg þó sjálfsagt, að stjórnin gerði það.
Jeg skil nú varla, að orðið geti tvær stefnur í þessu máli, því að jeg skil ekki annað en að allir hv. þm. líti svo á, sem þeir hafi í fyrra, með atkvæði sínu um sáttmálann, gefið þjóðinni loforð um að gera búsetu að skilyrði fyrir atvinnurekstri og fasteignaráðum í landinu. Nú myndi enginn undrast, þótt slíkar ráðstafanir yrðu gerðar, en mörgum þætti undarlega við bregða, ef farið væri að breyta til eftir nokkur ár.
Ef nú svo ólíklega fer, að nokkur rísi upp til að mótmæla þessari stefnu, er frv. þetta fylgir fram, þá yrði jeg að skoða það svo, sem hjer sjeu uppi tvær stefnur. Sú stefna, sem væri móti því að nota búsetuskilyrðið, hlyti þá að vera danskhlynt stefna, sem ekki vildi nota rjett þann, sem Íslandi er viðurkendur með sáttmálanum, heldur gefa eftir af honum. Mundi þá skifta í tvö horn, því að á móti þessari stefnu myndu snúast allir landvarnarmenn, hvort sem þeir hafa borið það heiti áður eður eigi, allir þeir, sem vilja þessa þjóð óháða og frjálsa og landið með gæðum þess geymt eftirkomendum. Myndu þá halda áfram tveir flokkar í sjálfstæðismálinu, og þá það sannast, að eigi væri rjett sú staðhæfing, að allir hafi verið sammála um, hverju ætti að ná, en einungis ósammála um veginn.
Hverjum dettur í hug, að Íslendingum beri nokkur skylda til að gera meira en að halda gerðan samning? Jeg hefi raunar heyrt einstöku raddir segja, að Danir hafi gert það af mikilli mildi sinni og miskunsemi að ganga að samningunum. En jeg veit, að þeir gerðu það ekki af mildi, miskunsemi eða bróðurást, heldur var það ástandið í heiminum, sem neyddi þá til að gera það. Jeg skal ekki rekja það nánar, en mjer er auðvelt að sanna þetta mál mitt. Þess vegna þurfum vjer ekki hjer að gefa þeim viðurkenningu fyrir mannúðina með því að afsala oss einhverju, sem oss var áskilið og heimilað í samningnum. Jeg vil nú vona, að þessar tvær stefnur komi ekki upp, og að svo reynist, að stjórnmáladeila undanfarinna ára hafi verið aðferðardeila, en ekki niðurstöðu.
Í þessu frv. munu nú vera ýms atriði, sem sjálfsagt gæti eins vel átt heima í öðru frv. Jeg hefi, tímaskorts vegna, orðið að skrifa frv. upp í flýti, og vanst ekki tóm til að líta í lög annara þjóða um slík efni. Frv. getur því frekar álitist sem stefnuskrá í málinu, sem háttv. allsherjarnefnd fær væntanlega til meðferðar, lagar í hendi sjer og gerir fleiri frv. úr, ef henni sýnist svo.
En aðalatriði málsins eru þessi:
1. Gera búsetu í landinu að skilyrði fyrir atvinnurekstri útlendinga.
2. Heimta af útlendingum ýms skilríki, sem frv. tekur nánar til og
3. gera útlendingum að skilyrði að læra íslenska tungu.
Sumir halda, að Danir muni móðgast, ef menn hjer á landi haga sjer eins og samningurinn leyfir, en það er misskilningur, því að Danir hafa búsetu sem skilyrði fyrir atvinnufrelsi, því, að núna, eftir að samningarnir eru gerðir, eru Danir ekki hræddir við að setja skilyrði fyrir atvinnufrelsi. Jeg á hjer við „Forslag til Lov om Afholdelse af Fondsbörs“, sem stjórnin danska hefir lagt fyrir þingið í Danmörku. Auk ýmsra almennra skilyrða um kunnáttu o. fl., sem Íslendingar jafnt sem Danir geta uppfylt, er sett sem skilyrði fyrir þátttöku í fyrirtækinu, að hlutaðeigendur hafi „Indsfödsret“ og að þeir „i de sidste fem Aar har haft Bopæl her í Lande“. — Hjer geta menn sjeð, að þótt Íslendingar fyltu öll önnur skilyrði, þá vantar þá „Indfödsret“, þ. e. þetta danska frv. hannar öllum, sem ekki hafa átt heima í Danmörku næstu fimm ár á undan, að reka þessa atvinnu. Má sjá af þessu, hvort nokkur ástæða er fyrir Dani að verða reiða við okkur, þótt við setjum lög um atvinnufrelsi.
Þá er enn eitt ákvæði í frv., sem jeg býst við að mönnum þyki nokkuð hart, og það er, að menn þeir erlendir, sem atvinnu ætla að reka í landinu, tali tungu þjóðarinnar. En jeg gef ekki fallist á, að það sje strangt skilyrði. Til þess, að aðkomumaður hafi not af dvöl sinni í landinu, þarf hann að kunna tunguna, og til þess, að hann skaði ekki þjóðina, sem fyrir er, þarf hann líka að kunna tunguna. Vera má, að hið síðara atriðið komi ekki til greina, þar sem innflutningur á fólki er hverfandi lítill, svo sem í nágrannalöndunum. þau eru flest notuð til fulls af fólki, svo að ekki er búist þar við innflutningi; þess vegna er þetta ákvæði óþarft þar. En hvernig er hjer? Nú er búist við miklum innflutningi útlendinga inn í landið, t. d. í sambandi við væntanlega vatnsvirkjun, en þjóðin er fámenn og dreifð um stórt svæði. Þetta er því alvörumál og sjálfsagt fyrir Íslendinga að gæta hjer allrar varúðar. Tel jeg sjálfsagt, að ákveðið sje í lögum um atvinnufrelsi, enda þótt engin önnur þjóð hafi það.
Reynslu undanfarinna ára má enn fremur færa sem rök fyrir þessu. Enn þá hafa ekki verið mikil brögð að innflutningi útlendinga. Aðallega eru það Danir, Norðmenn og Svíar; en þeir skoða sig líka sem sjerstæða heild, í mótsetningu við Íslendinga. Og hvað mundi þá, ef meira væri? Þetta ákvæði er því sjálfsagður liður í því starfi, að verja þetta land fyrir ágengni annara þjóða.
Vona jeg svo, að deildin lofi málinu að fara til allsherjarnefndar, og það fái þar þær umbætur, sem jeg veit að það þarf, þar eð tími minn var svo takmarkaður, að jeg fjekk ekki gengið eins vel frá því og jeg vildi.