23.07.1919
Neðri deild: 14. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1102 í C-deild Alþingistíðinda. (3667)
74. mál, vegir
Flm. (Sigurður Sigurðsson):
Um frv. þetta ættu ekki að þurfa að vera langar umr. Jeg skal að eins taka fram, að það er flutt hjer í háttv. deild vegna áskorunar til þingmanna Árnessýslu, sem samþykt var á fundi sýslunefndarinnar 25. apríl til 3. maí í vor.
Ástæðurnar fyrir frv. eru teknar fram í greinargerð frv. og eru í stuttu máli þær, að útgjöld til sýsluvega eru orðin svo geysimikil, að hið lögákveðna sýslusjóðsvegagjald hrekkur hvergi nærri til þess að fullnægja vegaviðhaldinu.
Jeg leyfi mjer að leggja til, að málinu verði vísað til allsherjamefndar, að umr. lokinni.