08.08.1919
Neðri deild: 28. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1146 í C-deild Alþingistíðinda. (3724)

87. mál, dýralæknar

Frsm. (Sigurður Sigurðsson):

Háttv. 2. þm. Rang. (E. J.) hjelt, að frv. það, sem jeg hefi gerst flm. að, væri runnið undan rifjum Magnúsar Einarssonar dýralæknis. En jeg skal lýsa yfr því, að frv. er fram komið fyrir áskorun og fundarsamþyktir bænda austan fjalls um að fá dýralækni. Þetta var fyrst samþykt í einu hljóði á sýslufundi í Árnessýslu og síðan á þingmálafundum. Og ef dýralæknirinn settist að í Rangárvallasýslu, væri ástæða fyrir 2. þm. Rang. (E. J.) að vera frv. hlyntur.

Jeg skal taka það fram í sambandi við almenningsfræðslu í þessum efnum, að til er í handriti dýralækningabók, sem verður gefin út, þegar útgáfukostnaður lækkar og styrkur fæst til útgáfunnar úr landssjóði. En þó að jeg telji nauðsynlegt að slík bók verði gefin út, sem bráðabirgðahjálp, þá útilokar hún ekki nauðsynina á fjölgun dýralækna.

Til svars því, sem þm. Borgf. (P. O.) sagði síðast, skal þess getið, að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) hefir aldrei gengið í skóla hjá Búnaðarfjelagi Íslands.