31.07.1919
Neðri deild: 22. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í C-deild Alþingistíðinda. (3739)
100. mál, sala á nokkrum hluta heimalands Auðkúlu
Matthías Ólafsson:
Það er ærið einkennileg aðferð að tefja þingið með öðrum eins málum og þessu, þar sem þm. (Þór. J.) hefir enga ákveðna afstöðu til málsins. en flytur það að eins af því, að hann hefir verið beðinn um það.
Þetta er önnur tilraunin, sem gerð hefir verið til þess að selja eignir landssjóðs. Jeg veit ekki betur en að hv. flm (Þór. J.) hafi áður verið á móti sölu þjóðjarða, þótt hann gerist nú flutnm. að frv. um sölu á ágætum jarðarparti, þvert á móti vilja umráðandans.
Annars sýnir þessi eftirsókn manna í að búa, að búskapur hlýtur að borga sig miklu betur en af er látið. Ef það væri ekki, mundu menn ekki sækjast svo eftir jörðum, sem raun er á.
Hv. flm. (Þór. J.) sagði, að umsækjandinn vildi skila landinu aftur, ef þörf krefði, en sennilega þó við því verði, sem honum þóknaðist, en ekki eftir tillögu þingsins.