31.07.1919
Neðri deild: 22. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í C-deild Alþingistíðinda. (3741)
100. mál, sala á nokkrum hluta heimalands Auðkúlu
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg þori ekki að segja, hvort það er óhugsandi að láta af hendi part af þessu prestssetri til frekari ræktunar. En mjer virðist málið vanta allan undirbúning. Í fyrsta lagi hefði kirkjustjórn átt að athuga málið. Það nægir ekki að fá að eins álit prestsins. Það þyrfti einnig að bera það undir viðkomandi prófast og biskup. En þingið getur ekki sint málinu áður en þetta álit er fengið.
Mjer virðist, að málið eigi ekki heima hjá landbúnaðarnefnd, því að hún getur ekki skorið úr því, hvort prestssetrið getur verið án jarðarinnar. Hún getur að eins athugað málið frá sjónarmiði landbúnaðarins. Nær lægi að vísa málinu til allsherjarnefndar. En mjer virðist, að þingið geti ekki fjallað frekar um málið fyr en það hefir gengið þá leið, sem jeg hefi minst á.