21.07.1919
Neðri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í B-deild Alþingistíðinda. (375)

32. mál, sala á hrossum til útlanda

Pjetur Jónsson:

Það eru að eins tvö atriði sem jeg vildi athuga og svara nokkrum orðum.

Háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) virtist halda, að Thor Jensen hefði ferðast til Danmerkur beint til að semja um hrossasölu fyrir stjórnina, en það er ekki rjett. Thor Jensen fór sinna erinda og hafði ákveðið ferð sína áður en hann hafði hugmynd um þessa hrossasölu. En af því að ferð hans fjell fyrir um það leyti, sem hrossasalan kom til og stjórnin ákvað einkasöluna, tók hann að sjer erindi fyrir stjórnina í þessu máli.

Svo var það hitt atriðið, sem jeg vildi minnast á. Það er um hvatir stjórnarinnar til að halda áfram einkasölunni á hrossunum. Stjórnin gat að vísu hætt við einkasöluna, en þetta var ekki orðið þegar verðtilboðin komu.

Eftir hvítasunnuna voru umræður um það milli útflutningsnefndar og stjórnar, hvort sinna ætti fyrirliggjandi tilboðum, og í öðru lagi, hvort stjórnin ætti að halda áfram einkasölunni. Varð það að ráði að bera þetta mál, bæði um einkasöluna og eins um tilboðið, sem frammi var, undir þá menn, sem þetta mál einkum snerti og hægt var að ná í. Útflutningsnefnd boðaði þá, fyrir hönd landsstjórnarinnar, þá menn á fund, sem stjórnin áleit að helst væru fulltrúar hrossaeigenda. Þessir menn voru framkvæmdarstjóri Sláturfjelags Suðurlands og framkvæmdarstjóri Samb. ísl. samvinnufjelaga, af því að sambandið hafði tekið að sjer umboð á sölu hrossa fyrir þau hjeruð, sem það náði yfir. Sláturfjelagið hafði einnig safnað hrossaloforðum, undir þeim skilyrðum, að fjelagið hefði rástöfunarrjett yfir þeim. Það er víst óhætt að segja, að ekki hafi verið hægt að fá fullkomnari fulltrúa fyrir hrossaeigendur. Þá boðaði og nefndin formann Búnaðarfjelags Íslands, og enn fremur náðist í forstjóra kaupfjelagsins „Heklu“ á Eyrarbakka. Því næst var fundurinn haldinn og voru á honum tveir menn úr útflutningsnefndinni. Það voru aðallega tvær spurningar, sem lágu fyrir, fyrst sú, hvort menn vildu halda einkasölunni áfram, og þar næst hitt, að taka afstöðu til boðsins, sem komið var. Nefndin kaus þá afstöðu, að hafa sjálf engin áhrif á málið og láta ekki uppi sitt álit, til þess að hinir fundarmenn væru áhrifalausir í sínu áliti. Niðurstaða þessara manna varð sú, að mæla eindregið með því að halda áfram einkasölunni. Þessi niðurstaða var einnig samhljóða þeirri, sem málsmetandi maður, (Forsætisráðh.: Mjög málsmetandi), sem hefir eftir stöðu sinni gott vit á þessu máli, því það er formaður Búnaðarsambands Suðurlands, komst að. Þá er það líka kunnugt, að ekki var þetta á móti vilja Skagfirðinga, því sýslunefnd þeirra ætlaðist beinlínis til þess. Frá Húnvetningum komu líka eindregin meðmæli, og stóð svo á, að við höfðum símtal við menn á almennum fundi á Hvammstanga þennan dag. Úr Dalasýslu komu engar tillögur í þessu máli. (B. J.: Þar er sími, og þess vegna er hægt að spyrja.) Enn fremur tók nefndin þegar í stað að safna loforðum, sem sýslumenn söfnuðu. Þar sem nú loforð voru gefin, og engin mótmæli komu gegn þessari aðferð jafnframt þeim, þá getur það skoðast sem nokkurskonar atkvæðagreiðsla um málið. (G. Sv.: Engan veginn. B. J.: Alls ekki.) Þegar engar athugasemdir komu fram, þá verður að líta svo á að menn hafi verið því sammála. Um þetta verður hver að dæma eftir sinni skoðun, og þær geta verið skiftar. (G. Sv.: Þetta er misskilningur.) Jeg segi að eins frá því, sem gerðist, og annað ekki.

Þegar þessi fundur var haldinn, var nefndin enn ekki búin að fá vitneskju um, hvort hægt væri að selja lægri hross en 48 þumlunga. Var henni falið að reyna að koma lægri hrossum að, og það hepnaðist. Fundurinn var haldinn á fimtudag, en svör við fyrirliggjandi tilboði áttu að koma á föstudag. Það fyrsta, sem gera varð, var að reyna að fá tilboðið teygt, að minsta kosti þangað til Thor Jensen væri kominn heim; á þetta lagði fundurinn mikla áherslu, og rjeð því frá að samþykkja boðið breytingarlaust þegar í stað. Og svo fór, að hægt var að fá tilboðið framlengt til 24. júní, en þó svo, að kaupendurnir álitu sig ekki bundna við það að öllu leyti.

Um útflutningsnefndina ætla jeg ekki að þrátta hjer. Hennar forum er ekki á þessum stað. Hún hefir ekkert gert í málinu nema það, sem landsstjórnin fal henni, og á að standa landsstjórninni reikningsskap. En jeg fyrir mitt leyti get sagt það, að jeg var því meðmæltur, að einkasalan hjeldi áfram, því það áleit jeg að myndi verða landinu fyrir bestu og að mestu gagni, eins og nú standa sakir. Og ekki hefði verið neitt hik á mjer í sporum stjórnarinnar að gera slíkt hið sama og hún gerði.