21.07.1919
Neðri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 684 í B-deild Alþingistíðinda. (377)
32. mál, sala á hrossum til útlanda
Gísli Sveinsson:
Jeg ætla að víkja nokkrum orðum að landbúnaðarnefnd, eða rjettara sagt frsm. hennar, hv. 1. þm. N.-M. (J. J.). Hann vildi mæla á móti því, sem jeg hafði sagt um nefndina, að hún hafi ekki starfað sjálfstætt eða athugað málið, sem henni bar. En álitið sýnir sig. Það er ekkert annað en álit útflutningsnefndar. Í raun rjettri hefði það átt að heita svo, en slíkt getur ekki gengið, og þess vegna siglir það undir merki landbúnaðarnefndar. En hvað sem því viðvíkur, þá er það víst, að það er engu að síður álit útflutningsnefndar, sem er aðili í sjálfu málinu.
Hv. frsm. (J. J.) talaði um líkurnar, sem hann áleit að mættu sín svo mikils í þessu máli, þar sem svo fátt væri, sem hægt væri að segja með vissu. Þetta er alveg rjett hjá honum; hjer verður að vega eftir líkum, og það var einmitt það, sem jeg var að vona að hv. nefnd mundi gera. Jeg bjóst satt að segja við, að hún mundi bregða upp fyrir okkur metaskál rakanna og hlaða síðan rökum, líkum og staðreyndum eftir því, hvort þær mæltu með eða móti. En þetta hefir nefndinni láðst. Eftir því, sem fram hefir komið, virðist sem hún hafi lítið athugað þessar margumræddu líkur, heldur látið sjer nægja að hafa þær eftir. Hún hefir lítið fengist um það, hvort það, sem fyrir hana var borið, var rjett, heldur hefir tekið það alt sem góða og gilda vöru.
Þá kvað hv. frsm. (J. J.) það rangt, að fyrir dönsku stjórninni hefði vakað að fá lágt verð. Þeir segja mest af Ólafi konungi, sem hvorki hafa heyrt hann nje sjeð. Það er vitanlegt, að um þetta verður ekkert sagt með vissu, hvorki af frsm. eða öðrum. Hjer verður því að athuga líkurnar, og þá býst jeg við, að engum geti dulist, að hver og einn vill fá þá vöru, sem hann þarfnast, með eins vægu verði og hægt er. Það er því augljóst, að danska stjórnin hefir vonast eftir að fá hrossin með vægu verði, eins og hún fjekk það líka í fyrra, og þá var verðið þó hærra en það verður nú. Það hefir verið látið í ljós af ábyggilegum manni og kunnugum, að verðið á hrossum í fyrra hafi verið lægra vegna þess, að danska stjórnin ljet íslensku stjórnina fá sykur og kornvöru með vægu verði. Með öðrum orðum, að tvöföld hrossakaup hafi farið fram. Það er þó skárra, að verðið lækki fyrir svona ívilnanir, heldur en fyrir ekki neitt, nema ef til vill grunnhygni. En það er þó engan veginn eðlilegt, og stríðir algerlega á móti eðli og einkennum allrar verslunar, sem hæstv. atvinnumálaráðherra þykist þó vera sjerfræðingur í. Það er óeðlilegt að láta suma borga fyrir aðra, eða í þessu tilfelli, hrossaeigendur borga fyrir alla landsmenn.
Menn hafa miðað við verðið frá í fyrra, og gert sig ánægða með það, eftir atvikum, en nú kemur það upp úr kafinu, að það verður mikið lægra, og þá er óskiljanlegt, að menn haldi, að hrossaeigendur sjeu alment ánægðir með það, eða geti ekki hafa haft von um, að það yrði hærra, ef frjálst væri. Það má að minsta kosti virðast ærið einkennilegt, sjerstaklega þegar líka þess er gætt, að það, sem lækkaði verðið í fyrra, er nú fallið úr sögunni, og kemur ekki til greina, sem sje skiftin á hrossum og korni og sykri.
Það lítur svo út, sem landsstjórnin hafi ekki athugað líkurnar til fulls, útflutningsnefnd ekki heldur, og að síðustu hefir háttv. landbúnaðarnefnd farið á hundavaði yfir þeirra athuganir. Því skal engan furða, þó ekki sje djúpt rist.