27.08.1919
Neðri deild: 47. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1175 í C-deild Alþingistíðinda. (3777)

88. mál, sala á prestsmötu

Sigurður Stefánsson:

Jeg á brtt. á þgskj. 492 Það, sem kom mjer til að flytja þessa brtt., er einmitt brtt. nefndarinnar, á þgskj. 467. Jeg verð að fara nokkrum orðum um brtt. mína, því að jeg býst ekki við, að hv. deildarmenn hafi getað sett sig inn í málið, eins og það liggur fyrir.

Svo stendur sem sje á, að í Ögri við Ísafjarðardjúp er prestsmata 24 fjórðungar af smjöri. En þessu er svo varið, að nú eru fleiri hundruð ár síðan kúgildin voru að eins 14. 10 þess vegna fallin, sem engin veit hve nær hafa dottið úr sögunni. En jafnan hefir þó verið goldin prestsmata af 24 kúgildum.

Jeg hefi kynt mjer málið og gengið í gegnum biskupsvisitasiur síðan frá ofanverðri 18. öld. Kvartar kirkjubóndinn í Ögri yfir þessu gjaldi, en fær enga leiðrjettingu. Um miðja síðustu öld reis mál út af kúgildum þessum, milli Ögurbónda og sóknarprestsins. Hafði Ögurbóndi trássast við að gjalda prestsmötu af þessum dauðu kúgildum. — Málið gekk til hæstarjettar, og tapaði Ögurbóndi málinu, og hefir síðan orðið að gjalda prestsmötu af 24 kúgildum, þótt þessi 10 kúgildi væru algerlega fallin.

Það er hart fyrir Ögurbóndann að þurfa að greiða prestsmötu af þessum kúgildum. Vænti jeg, að hv. deild líti á þetta með sanngirni, og samþ. því þessa brtt., sem fer fram á samskonar ívilnun og brtt. nefndarinnar. Um uppbótina til prestsins í þessu tilfelli er það að segja, að ekki mun þurfa að greiða hana í mörg ár; sjálfsagt er, að næsti prestur geti ekki heimtað þessa uppbót. Jeg skal ekki segja, nema víðar sje líkt ástatt, og væri þá því meiri ástæða til að kippa þessu í lag.

Vænti jeg, að hv. deild taki þessu með sanngirni.