27.08.1919
Neðri deild: 46. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1183 í C-deild Alþingistíðinda. (3791)
133. mál, lestagjald af skipum
Björn R. Stefánsson:
Það var ekki ætlun mín að tala nú um þetta mál, svo að jeg er ekki vel undir það búinn. Hv. frsm. (M. G.) var að tala í þessu sambandi um, að þessi skattur kæmi í stað ábúðarskattsins, en mjer finst, að það fari nú að fyllast skarð Skíða, þótt undan dragi smábátana. — Svo mintist hv. frsm. (M. G.) á skip, sem væri virt á 1000000 kr. Það, sem jeg talaði aðallega um, var, hversu hart þetta kæmi niður á smábátum, en á stórskip mintist jeg ekki og fann ekkert að því, þó að þessi skattur væri á þau lagður. Jeg tel það sem sje rangt, að þetta gjald skuli koma niður á allra smæstu mótorbátum, en svo er eftir 1. gr. frv., þar sem talað er um, að skattinn skuli leggja á alla báta, sem eru 12 smálestir „brúttó“.
Þá vil jeg og minna menn á annað gjald, sem nú er verið að leggja á öll skip, og það er vitagjaldið. Það gjald er altaf að hækka; það var nokkuð hækkað 1917, og nú stórhækkað á þessu þingi. Er því nóg á smábáta lagt, þó þessi skattur nái ekki til þeirra. — Það má ekki skilja þessi orð mín svo, að jeg telji vitagjaldið ranglátt, enda munu flestir sjófarendur vilja vinna það til að borga hærra vitagjald fyrir betur lýsa siglingarleið. En á það legg jeg sjerstaka áherslu, að ef þetta frv. á að ganga fram, þá má það alls ekki ná til svo smárra báta, sem hjer er ráð fyrir gert.