03.09.1919
Neðri deild: 53. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í B-deild Alþingistíðinda. (38)
1. mál, fjárlög 1920 og 1921
Frsm fjárveitinganefndar (Magnús Pjetursson):
Jeg vil láta þess getið, að jeg ætla mjer að geyma að svara hæstv. fjármálaráðherra (S. E.), þar til næsti kafli fjárlaganna kemur til umræðu, því að í þeim kafla eru ýms atriði, sem jeg hlýt að komast inn á um leið og jeg svara honum.
Jeg ætla ekki að blanda mjer í deiluna um sendiherrann, en þó vil jeg geta þess, að mjer virðist sumir hverjir þeirra, sem samþyktu með glöðu geði í fyrra fullveldið, þora nú ekki að horfa framan í það og þau auknu útgjöld, sem hljóta að leiða af því.