30.07.1919
Efri deild: 18. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1197 í C-deild Alþingistíðinda. (3817)

69. mál, almennur ellistyrkur

Frsm. (Magnús Torfason):

Mjer virðast umr. alls ekki snúast um kjarna málsins. Aðalatriðið er, hvort verðlagið, borið saman við það, sem átti sjer stað 1909, er of hátt. Jeg segi nei. Svo framarlega, sem við viljum ekki svíkja sjóðinn, verðum við að hækka tillagið. Allar lífsnauðsynjar eru nú margfalt dýrari en þá, og vinnuaflið er að sama skapi dýrara. Það er kunnugt, að þá var dagsverkið ekki nema 2 kr., en er nú yfir 6 kr. Það verður að minsta kosti að hækka tillögin svo mikið, að samræmi verði í því.

Það er auðvitað leiðinlegt að þurfa að útiloka nokkurn mann frá styrk, sem sækir um styrk úr sjóðnum, en það er enginn sá sjóður til, sem geti fullnægt öllum, sem til hans kunna að leita. Og það, sem við ættum að leggja mesta áherslu á, væri þá það, að styrkja og efla sjóðinn, svo hann geti hjálpað sem flestum.

20 kr. lágmarkið var í lögunum frá 1890 og hefir haldist óbreytt frá því fyrsta að farið var að veita styrk úr sjóðunum. 40 kr. lágmarkið er eingöngu miðað við verðlagið, sem nú er á öllum lífsnauðsynjum, og gerir síst betur en samsvara 20 kr. lágmarkinu, sem sett var í byrjun.