17.09.1919
Neðri deild: 66. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1209 í C-deild Alþingistíðinda. (3855)
61. mál, skipun læknishéraða o. fl. (Kjalarneshérað)
Björn Kristjánsson:
Þetta frv. er borið fram í hv. Ed., eftir margítrekaðar óskir frá íbúum Kjósarsýslu um að fá sjerstakt læknisembætti á Kjalarnesi.
Eins og hv. deild sjálfsagt man, þá var áður sjerstakt læknissetur í Kjósarhreppi. En það var afnumið nú fyrir nokkrum árum, og hafa íbúarnir síðan verið læknislausir að kalla.
Í þessu væntanlega hjeraði voru samkvæmt manntali 1910 tæpir 1000 íbúar, eða 977, og er það hærri íbúatala en í 11 öðrum hjeruðum hjer á landi. Aftur eru 6 hjeruð, sem hafa 50–100 manns fleira. Svo það er óhætt að segja, að þetta hjerað jafnist á við 17 önnur læknishjeruð á landinu, hvað snertir íbúafjölda.
Eins og oft hefir verið skýrt frá hjer í hv. deild, má telja þessar sveitir alveg læknislausir, því reynslan sýnir, að íbúarnir kjósa heldur að vitja læknis hingað til Reykjavíkur, þegar nauðsyn ber til, og borga fyrir það margfalt hærra verð heldur en taxtinn er, heldur en að vitja hans þangað, sem þeir eiga læknissókn. Þeir vilja ekki með neinu móti sækja lækni til Hafnarfjarðar. Þar er líka þannig ástatt, að íbúum hefir fjölgað mikið síðustu árin, svo að læknirinn þar hefir ærið að starfa.
Nefndin í hv. Ed. hefir látið uppi álit sitt um þetta. Það er á þgskj. 776, sem skírskotar til nál. á þgskj. 775, sem er um læknishjeraðið í Hólshreppi.
Jeg ætla því að lesa fáein orð úr þessu nál., með leyfi hæstv. forseta:
„Nefndin hefir athugað frv. þetta, og hefir ekki getað fundið annað en að það sje bygt á brýnni nauðsyn og fylstu sanngirni.
Það er mjög augljóst, að hjer er um nauðsynjamál að ræða, sem þingið getur ekki gengið fram hjá lengur, þegar alls þessa er gætt.“
Þessi ummæli vill hv. Ed. láta gilda um þetta hjerað, eins og Hólshjerað. Eins og hv. þm. muna, var talað um stofnun annars hjeraðs hjer á dögunum, og taldi hæstv. forsætisráðherra (J. M.), að þetta væri annað í röðinni af þeim, sem mest nauðsyn bæri til að yrðu sett á stofn. En hins vegar vildi hann ekki, að stofnað yrði nema eitt á þessu fjárhagstímabili. Hvort hjeraðið er stofnsett ári fyr eða síðar, munar landssjóð litlu, eins og allir sjá. En aftur munar það sjúklingana miklu, sem þá í heilt ár, eða lengur, þurfa að borga meira en tvöfalt verð fyrir að vitja læknis, ef á annað borð eru tök á að ná í hann. Jeg vænti þess því, að hv. deild sýni þá sanngirni, að leyfa þessu frv. að ganga fram, þar sem svo oft hefir verið beðið um þetta með fullri nauðsyn. —
Jeg tel rjettast, að frv. fari til fjárhagsnefndar, eins og hitt frv. næst á undan, og vona, að það fái þar skjóta afgreiðslu.