12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í C-deild Alþingistíðinda. (3875)

52. mál, skipun læknishéraða o. fl. (Bakkahérað)

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg hafði ætlað mjer að geta þess, að mjer finst athugavert að samþ. frv. þetta hjer í hv. deild. Það er þó ekki vegna þess, að jeg telji ekki, að ástæða geti verið að láta lækni fara í sveitina í Hróarstungu, heldur af því, að jeg álít það ekki gott að stofna mörg ný læknishjeruð á sama þinginu.

Jeg tel það varla fært að bæta við meira en einu á þessu þingi, þar sem vitanlegt er, að hvert nýtt læknishjerað fæðir af sjer kröfur um níu önnur.

Hjer hefir nú sama sem verið samþ. eitt, tvö hafa verið feld, og þrjú eru á leiðinni.

Og mjer finst það sjerstaklega athugavert að stofna nýtt hjerað í einum fámennum hreppi, eins og hjer er um að ræða. Árið 1910 voru þar 430 íbúar, en nú því sem næst 480, svo að fjölgunin hefir verið þar mjög lítil.

Jeg hygg, að rjettara væri að athuga skipun hjeraðanna, og færa til þar, sem hægt er, heldur en að fjölga þeim sí og æ.

En verði stofnað nýtt hjerað þar í Borgarfirðinum, þá hygg jeg, að ekki verði hægt að neita um það í Ólafsfirði, og hvernig ætti þá að neita um það í Hnappadalssýslu, og jafnvel í Kjalarneshreppi. Jeg hygg, að ekki verði hjá því komist að bæta þeim báðum við, svo framarlega sem þetta verður samþ.

Það er líka alveg satt, að það er langt fyrir menn ofan af Kjalarnesi eða úr Kjós að þurfa að sækja lækni sinn í Hafnarfjörð, og svona má lengi telja.

Jeg ímynda mjer líka, að ekki liði á löngu þangað til þeir heimta nýjan lækni á Suðurnesjum Reykjaness, því stundum getur verið erfitt fyrir einn lækni að þjóna bæði Keflavík og Garði.