21.07.1919
Efri deild: 12. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í B-deild Alþingistíðinda. (395)

39. mál, skrásetning skipa

Frsm. (Karl Einarsson):

Frv. þetta er orðrjett eins og bráðabirgðalögin 30. nóv. 1918. Það var nauðsynlegt að gefa þau lög út eins og þá var komið, að kveðinn var upp úrskurður um íslenskan farfána. Það er því síður ástæða til þess að breyta þessum lögum, sem nú liggur fyrir frv. um skrásetning skipa, og gilda þessi lög þá til 1. jan. næstkomandi, þangað til þau taka við.