19.07.1919
Neðri deild: 11. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í B-deild Alþingistíðinda. (423)

37. mál, útflutningsgjald af fiski, lýsi o.fl.

Magnús Pjetursson:

Hæstv. fjármálaráðh. í S. E.) sagði, að jeg hefði altaf litið stimpilgjaldslögin illu auga. Þessu vil jeg mótmæla, því það er ekki rjett; þó jeg ekki gæti greitt atkv. með þeim, þá var það að eins af því, að jeg vildi ekki blanda inn í þau útflutningsgjaldinu. Annars mundi jeg hafa ljeð þeim atkv. mitt.

Jeg get aldrei skilið, að erfiðara væri að ná inn þeim skatti, þótt hann væri kallaður sínu rjetta nafni, en ekki breidd yfir hann þessi huliðsblæja, eins og nú er gert.

Það er eins og verið sje að draga í efa rökskygni manna, ef til þess er ætlast, að hann gangi betur í augun á þennan hátt.

Hinu hefi jeg aldrei gert ráð fyrir, að skatturinn fjelli niður, þó hann yrði fluttur á sinn rjetta stað.

Jeg get að nokkru skilið aðstöðu fjárhagsnefndar, þar sem hún er svo sannfærð um, að endurskoðun skattamálanna fari fram á næsta ári.

Jeg er ekki sannfærður um, að svo verði. Margt getur hindrað slíkt. Og jafnvel þó svo yrði, þá get jeg þó búist við, að ýms óþægindi, jafnvel vandræði og ranglæti, geti af því leitt að láta þetta útflutningsgjald frá í fyrra halda áfram að sigla undir fölsku flaggi.