03.09.1919
Neðri deild: 53. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í B-deild Alþingistíðinda. (44)

1. mál, fjárlög 1920 og 1921

Sigurður Sigurðsson:

Jeg á hjer, ásamt öðrum góðum mönnum, þrjár brtt. við þennan kafla fjárlaganna, og vil jeg með fáum orðum víkja að hverri þeirra.

Brtt. á þingskj. 597 fer fram á það, að Þingvallahreppi verði veittur 200 kr. ársstyrkur til að vitja læknis. Eins og hv. þm. mega vita, þá er Þingvallahreppur illa settur hvað læknishjálp snertir. Læknir hreppsins er búsettur í Skálholti en þangað er langur vegur, og auk þess yfir vatnsfall að sækja. Er oft hægara og betra að vitja læknis til Reykjavíkur. Að sumri til má segja, að ekki sjeu vandræði að þessu en öðru máli er að gegna að vetri. Það er snjóþungt á þessum slóðum og oft illkleift að leita læknis, hvort heldur er til Reykjavíkur eða Skálholts. Það má segja að hjer sje líkt ástatt og um Kjósarhrepp, sem veittur er styrkur í þessu skyni í fjárlögunum, og jeg vænti því, að hv. þm. samþykki brtt. Hún er sanngjörn.

Þá er brtt. á þingskjali 616. um Ólaf lækni Ísleifsson í Þjórsártúni. Sú till. er um, að hann fái 1500 kr. á ári fyrir að sinna læknisstörfum og aðstoða hjeraðslæknana í Árnes- og Rangárvallasýslum, er þeir kunna að óska þess. Það er kunnugt, að hann er góður læknir, þótt hann sje ekki háskólagenginn, og hann hefir hjálpað sjúkum, er hans hafa vitjað. Þetta geta nágrannar hans og sýslungar borið. Og þm. er það væntanlega ljóst því frammi á lestrarsal þingsins hafa legið skjöl, þar sem honum er lýst og högum hans, og þess er óskað, að þingið veiti honum ársstyrk. Hann er mjög mikið sóttur, og í vetur, þegar kvefpestin gekk, lagði hann mjög mikið á sig. Í sambandi við þetta mætti líta á það, að hann er ódýr og vanalega undir læknataxtanum. Auk þess gefur hann oft fátækum mönnum hjálp sína. Læknarnir á Eyrarbakka og Stórólfshvoli hafa oft leitað til hans, þegar þeir hafa þurft að gera stóra skurði á mönnum. Hv. framsm. (M. P.) mintist ekkert á þessa brtt., en mjer væri kært að heyra álit hans og nefndarinnar. (M. P.: Sjálfsagt.)

Þá á jeg brtt. á þgskj. 601, ásamt hv. samþingismanni mínum (E. A.).

Þegar hv. frsm. (M. P.) var að skýra frá till. nefndarinnar um þetta atriði — Flóaveginn —, þá gat hann þess, að þingmenn Árnesinga mættu vera þakklátir nefndinni fyrir undirtektir hennar, og má vera að svo sje, þar sem hún vill láta endurbyggja veginn. En mjer dylst ekki, að samkvæmt till. fylgir henni talsverður dilkur og hann erfiður fyrir sýsluna, þar sem hún á að leggja fram 1/3 af kostnaðinum. Það er satt, að haust og vor og í rosatíð er vegurinn lítt fær, og langir kaflar gersamlega ófærir. En þar sem þetta er þjóðbraut Suðurlands og meiri umferð um hann en nokkurn annan veg á landinu þá sjá allir hversu það kemur sjer illa að vegurinn skuli ekki vera góður, að minsta kosti sæmilegur yfirferðar. En þó að það megi segja, að vegurinn sje tíðast slarkfær fyrir lausríðandi menn, þá er hann oft mjög slæmur fyrir vagna og bíla. En sú umferð er orðin aðalumferðin. Það er því ekki vanþörf á, að Flóavegurinn sje bygður upp að nýju.

Út af þessu máli, sem er í raun og veru stórmál og varðar Árnessýslu mjög mikils, var haldinn aukafundur í sýslunefndinni, til að ræða um þetta vegamál. Kom þar fram álit nefndarinnar um það, að hún taldi að vísu nauðsyn á endurbótum á vegi þessum, og munu allir, sem kunnugir eru, sammála henni um þá þörf. Hins vegar heldur sýslunefndin því fram, að landssjóði beri skylda til að endurbyggja veginn, samkvæmt 7. gr. vegalaganna frá 22. nóv. 1907 en þar stendur: „Flutningabrautir skal fullgera á kostnað landssjóðs ....“

Þó að flutningabrautum sje skilað til viðhalds til sýslna, geri jeg ráð fyrir, að það komi fyrir, fyr eða síðar, að þær þurfi að endurbyggja. Hver á að bera kostnaðinn af því?

Þó að viðhaldið sje gott þarf engu síður að endurbyggja brautina, fyr eða síðar. En aftur á móti hefir gott viðhald þær afleiðingar, að endurbyggingin þarf seinna að fara fram en þar, sem viðhaldið er ljelegt. Það, hversu fljótt þarf að endurbyggja braut, fer einnig eftir því hvernig vegarstæðið er, ofaníburður o. fl.

Flóavegurinn var upphaflega ekki vel gerður og vegstæðið ekki gott. Ofaníburður var lítill og afarljelegur. Og sumstaðar skemmist vegurinn af vatnsrensli, og nú er hann svo kominn — þrátt fyrir stór kostnað af sýslunnar hálfu —, að hann getur ekki talist fær til almennra nota.

Í þriðja lagi lagði sýslunefndin áherslu á að hún treysti sjer ekki til að leggja fram fje til endurbyggingar vegarins, ofan á alt annað sem hún hefir á sinni könnu.

Það fje, sem sýslan þarf að nota til viðhalds gömlum vegum og byggingar nýjum, fer sívaxandi. Má í því sambandi minna á, að í haust eða á næsta ári fær hún afhentan mikinn hluta Grímsnessbrautarinnar, eða um 30 km. Þó að mjög sje þörf á þeim vegi, eru þó ýmsir kaflar hans miður gerðir og munu því þurfa viðgerðar þegar á fyrsta ári.

Af því, sem tekið hefir verið fram, sjest að sýslan hefir þegar mjög mikil þyngsli af vegum, þó að hún losni við að greiða af endurbyggingarkostnaði Flóabrautarinnar. Má enn fremur benda á það, að sýslan ætlar nú í haust, eða á næsta ári að taka 50 þús. kr. lán til verkfærakaupa, eða verkvjela til vegagerðar. Og þó að það sennilega borgi sig með tímanum, bindur hún sjer þungan útgjaldabagga með þessu um langt skeið.

Jeg skal nú ekki orðlengja meira um þetta atriði; hefi jeg nefnt ástæðurnar fyrir því, að sýslunefndin treystir sjer ekki til að taka að sjer 1/3 af kostnaðinum við endurbyggingu Flóabrautarinnar.

Áður en jeg sest langar mig til að gera örlitla athugasemd við 13. gr. C., sem ræðir um strandferðirnar.

Jeg var að líta á áætlanir þær sem útbýtt var hjer í deildinni í dag, um ferðir „Sterlings“ og skips Þorsteins Jónssonar & Co.

Þar er gert ráð fyrir, að Sterling komi að eins tvisvar á Eyrarbakka og Stokkseyri í fyrra sinn í apríl, en í seinna sinn í ágúst.

Mig undrar hve sjaldan skipið skuli eiga að koma þar við og enn meir, að ekki skuli vera valin önnur en 3. og 7. ferð. Í ágúst er jafnvel minst þörf á skipi til þessara hafna. Hins vegar er mikil þörf á skipsferð í apríl — eins og áætlunin tiltekur — maí og september. Ef skipið væri látið koma við á þessum höfnum þrisvar á ári og þá auðvitað í þeim mánuðum, sem mest þörfin er, væri það nær lagi.

Það lítur annars út fyrir, að þessi bygðarlög sjeu hálfgerð olnbogabörn hv. samgöngumálanefndar hvað samgöngum á sjó viðvíkur.

Skip Þorsteins Jónsonar & Co. hefði líka mátt koma við á Stokkseyri og Eyrarbakka í einhverri ferð þess, og virðist mjer það hafa legið eins nærri og að láta skipið koma við t. d. í Keflavík. Jeg bendi að eins á þetta til athugunar og vona að hv. samgöngumálanefnd sjái sjer fært að laga þetta sjerstaklega hvað Sterling snertir.

Jeg skal ekki mæla meira að þessu sinni. Hv. frsm. (M. P.) óskaði, að þm. gerðu sjer aðvart um það, sem þeir væru mótfallnir í 12. og 13. gr. Jeg hefi ekkert sjerstakt að athuga við aðra liði þeirra greina en jeg hefi þegar bent á. Jeg get tekið undir það með hv. frsm., að mikið ríði á, að bæta sem mest samgöngur á sjó og landi.