09.08.1919
Efri deild: 26. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (443)
37. mál, útflutningsgjald af fiski, lýsi o.fl.
Frsm. minni hl. (Magnús Torfason):
Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) mintist á dagskrána frá þinginu 1916–17. Jeg hefi hana hjer prentaða fyrir framan mig. Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) neri mjer og öðrum því um nasir í þann tíð, að við værum hræddir við Norðmenn. Studdi hann þá mjög á þá strengi, að meiri hætta stafaði af deiglunni í okkur en karlmenskunni. Jeg fæ ekki betur sjeð en að hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) sje nú orðinn eins deigur og við vorum þá. Það getur auðvitað ekki annað en glatt mig En hann þarf ekki stórt að láta. (Fjármálaráðh.: Man þingmaðurinn eftir tunnutollinum?). Jeg veit ekki betur en að sá tollur komi á innlenda menn líka. Það er hreint ekki svo lítið, sem einstakir, innlendir menn hafa flutt inn í ár af tunnum.
Áminst dagskrá fór fram á, að síldarmálið væri undirbúið. Það þarf ekki mikinn undirbúning til þess að hreyta úr sjer þessu frv. sem nú er til umræðu. Tilætlunin var, að stjórnin fyndi leiðir til þess að komast hjá því, að þessi atvinnuvegur væri tollaður sjerstaklega um fram aðra. En nú hefir stjórnin hreint og beint ráðist á síldarútgerðina. Þó er mjer til efs, að stjórnin eigi hjer öll óskift mál.
Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) var að bera sig til að hrekja tölur mínar um kostnað við síldarframleiðslu. Jeg fór í útreikningi mínum eftir leiðbeiningum frá sjerfróðum mönnum, og stend fast við, að hann sje rjettur, og að minsta kosti ekki of hár.
Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) vildi fá að vita, hvað saltið kostaði. Það mun fara kring um 1/3 tn. salts í tn. síldar. (Fjármálaráðh.: En hvað er verðið talið í áætluninni?). Það er ekki fullkomlega rjett að miða við 150 króna verðið hjer í landsversluninni. Spánarsalt var í sumar selt á Ísafirði fyrir 180 krónur. Á landsverslunarsaltið hefir og lagst flutningskostnaður þangað. Sumir útgerðarmenn neyddust jafnvel til að senda vjelbáta sína frá síldveiðunum til að sækja salt. Þá verður saltverðið síst talið lægra en 180 krónur, enda smálest salts á Ísafirði seld á 200 kr.
Hæstv. fjármálaráðherra endurtekur sífelt það, að allir vilji reka þennan atvinnuveg, og virðist telja það sönnun fyrir því, að leggja megi á hann skatta takmarkalaust. En hæstv. fjármálaráðherra ætti að vera um það kunnugt, hvílík reiðinnar ósköp af dýrum tunnum lágu hjer frá síðustu vertíð, og margir munu hafa látið fleiri báta ganga í ár en áður, að eins til að fylla tunnunnar. Það, hve gírugir menn reynast til þessa atvinnuvegar, kemur fyrst fram þegar gömlu, dýru tunnurnar eru þrotnar.
Sami ráðherra lagði áherslu á það, að nú myndi öll aðstaða síldarútvegsins batna, þegar gömlu tunnurnar væru búnar. Það er enn eftir að vita, hvort hún muni batna svo, að menn reynist óðfúsir til að gera út á síld.
Kaupgjald fer stöðugt hækkandi fyrir þennan atvinnuveg, sem aðra. En hins vegar er ekkert líklegra en að síldarverð lækki nú stórkostlega, þegar löndin fara að hafa nógan mat. Fjármálaráðh. (S. E.) kvartaði yfir, að jeg vekti yfir síldinni. Þetta var rjett athugað og jeg skammast mín ekkert fyrir. Síldarútvegurinn er annar aðalatvinnuvegur Ísafjarðarkaupstaðar, sem alt stendur og fellur með. En nú virðist það vera stefnan að skilja okkur ekkert eftir til eigin þarfa.
Jeg vil annars frábiðja mjer, að það sje snúið út úr því, er jeg segi, og það ætti að mega ætlast til þess, að fjármálaráðherra ríkisins geti að minsta kosti lesið rjett það, sem hann hefir prentað fyrir framan sig. Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) sagði, að jeg hefði ekki bent á neinn tekjustofn. Þetta er ekki rjett hermt, án þess jeg fari neitt nánar út það, því það var gert í einkasamtali. Jeg hefi bent á, að það má hækka vitagjaldið; það gjald lendir eigi minna á erlendum mönnum en innlendum, og fargjöld eru há og atvinnuvegurinn arðberandi. Þá má og hækka aukatekjugjöld og erfðafjárgjald, og áður en nýir skattar eru lagðir á þjóðina er rjettara að laga skatta þá, er nú hvíla á henni, og gera þá rjettari en nú er. Enn fremur má hækka vörutollinn meir en gert hefir verið, og allir þessir tekjuaukar eru sæmileg fúlga, er þeir koma saman.
Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) þóttist gera hreint fyrir dyrum sínum og sýna fram á tekjuþörfina, en af yfirliti því, er hann gaf, fjekk jeg enga skýringu, er mjer nægir. Við vitum að skattalögin gefa meiri tekjur næsta ár en hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) gerði ráð fyrir í yfirliti sínu við 1. umr. fjárlaganna í Nd., og svo bætast við öll tekjuaukafrv. þau er hið háa Alþingi samþ. nú, — en þau eru um 8 talsins, að ógleymdri kolaeinokuninni — og telst mjer til, að þetta alt sje frekar yfir 4 milj. króna en undir því. Jeg vænti þess að ef hæstv. fjármálaráðh. (S.E.) vill hrekja þetta, þá leggi hann fram nákvæma áætlun um þetta við næstu umr. þessa frv.
Hæstv. fjármálaráðh.(S. E.) var að dá hv. Nd. fyrir það, hversu hún skilaði fljótt og samþ. fljótt sjálfsagða tekjuauka. Mjer finst engin ástæða til þess, þegar þess er gætt, hvernig þessir skattar eru vaxnir og hverjir eiga sæti í fjárhagsnefnd Nd. Með frv. þessum er öllum sköttunum dembt á sjávarútveginn, en sjávarútvegurinn á engan fulltrúa í fjárhagsnefnd Nd. Og það er altaf eðlilegt, að menn sjeu greiðari á að skattleggja aðra en sjálfa sig.
Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) taldi það vera samviskusök að vera á móti þessu frv., en það er það þá fyrst, er hann hefir sýnt fram á, að þörf sje á þessum tolli, en það verður hann óneitanlega að sýna betur fram á en hann hefir gert. Og þegar hann var að tala um síldartollinn, þá mintist hann ekki með einu orði á það, hvaða verð mundi fást fyrir síldina; það leit helst út fyrir, sem hann teldi það hreint aukaatriði; og ekki mintist hann heldur á brtt. mína um að setja útflutningsgjald á landbúnaðarafurðir, en jeg legg áherslu á, að þær till. sjeu samþ., og landbúnaðarmenn geta ekki með óskertum heiðri greitt atkv. móti jafnsjálfsögðum brtt. Það viðurkenna og allir, að till. þessar sjeu af fullri sanngirni gerðar, og því undarlegra, að hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) skyldi ekki minnast á þær; það er þó tekjuauki fyrir ríkissjóð. Við vitum það og, að hugir manna í hv. N 1. hafa 1 reyst um þetta síðan um daginn, og jeg veit, að fjölmörgum bestu bændum landsins þykir skömm til koma að hlaupast undan skattabyrðum ríkisins. Þeim finst það vera sjálfsagt og rjett, að þeir beri sinn hluta af sköttunum. Og það er svo sem hægt að sjá, hvert stefnir um þetta, þegar þess er gætt, að frv. um að hækka ábúðarskattinn er enn fast í fjárhagsnefnd Nd., og það hefir ekki heyrst, að hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) hafi rekið á eftir því. Ekki er það frv. þó margbrotið, og á honum er þó rjett verðlag.
Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) taldi það þroskaleysi hjá þinginu, að það vildi kynoka sjer við að leggja skatt á afurðir hjerlendra manna (Fjármálaráðh.: Jeg man ekki eftir því). Það getur verið, að hv. þm. Ak. (M. K.) geti þá mint á það. (Fjármálaráðh.: Jú, 25 aura skattinn). En ef á að tala um þroskaleysi, er þá ekki rjettara að tala um það þegar menn hugsa um það eitt, að leggja byrðarnar á aðra en sjálfa sig.
Viðvíkjandi því, er hv. 2. þm. Húnv. (G. Ó.) tók fram skal jeg geta þess, að jeg vil ekki karpa hjer um það, er gerðist í nefndinni, en eins og hann vissi, vildi jeg strax í öndverðu, að skatturinn yrði lagður á landbúnaðarafurðir eins og sjávarafurðir.