11.08.1919
Efri deild: 27. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 763 í B-deild Alþingistíðinda. (452)
37. mál, útflutningsgjald af fiski, lýsi o.fl.
Frsm. minni hl. (Magnús Torfason):
Jeg verð að segja nokkur orð áður en jeg dey, jafnvel þótt jeg viti, að hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) hefir fleiri líf en kötturinn.
Jeg skal þá fyrst víkja nokkrum orðum að háttv. 1. þm. Rang. (E. P.). Hann var að taka upp eftir mjer ummæli, er jeg viðhafði í öðru máli. Getur verið, að mjer hafi orðið mismæli, eins og mörgum öðrum, en jeg tók það skýrt fram strax á eftir, við hvað jeg átti. Vænti jeg þess, að háttv. þm. (E. P.) sje samkvæmt stöðu sinni svo kristilega sinnaður, að hann viðurkenni, að einnig jeg eigi leiðrjetting orða minna.
Háttv. þm. (E. P.) ætlaðist víst til þess, að jeg skýrði fyrirfram muninn á áhrifum þorskkindarinnar og síldarinnar á mannsandann. Jeg er í engum færum um það, enda býst jeg við, að hæstv. forseti myndi telja það utan við umræðruefnið.
Hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) sagði það rjett hjá sjer, að jeg hafi verið á móti tekjuskatti á þinginu 1916. (Fjármálaráðh.: Það sagði jeg aldrei, heldur að hv. þm. hefði á þingi 1919 verið á móti því, að leggja á tekjuskatt fyrir 1916). Jeg veit, að hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) muni hafa orðið mismæli. Jeg skildi vel hvað hann átti við, en var að eins að borga fyrir mig, sýna, að fleirum getur orðið mismæli en mjer. Jeg var á móti því 1917, að tekjuskatturinn verkaði aftur fyrir sig, enda er það viðurkend regla um alla heim, að svo megi ekki vera. En þá reyndi jeg og að gera skattinn notabetri, þó að till. mínum yrði ekki framgengt, fyrir mótstöðu hæstv. fjármálaráðherra (S. E.)
Jeg verð að fara nokkrum almennum orðum um málið vegna þess, að það hefir komið í ljós, að menn þekkja ekki hvernig liggur í málinu. Það er auðsjeð að stjórnin hefir ekki athugað við undirbúning málsins, hvernig skatturinn kæmi niður á menn, og hún hefir enga hugmynd um það enn þá.
Menn eru að klifa á því, að sjálfsagt sje að taka skatt af þessari afurð af því, að útlendingar veiða hana. En þeir þykjast ekki vita, að þessi atvinnuvegir verður meira innlendur með hverju ári. Á Ísafirði t. d. eru engir útlendir útgerðarmenn, heldur eru það eingöngu innlendir menn, er stunda þennan atvinnuveg. Þess vegna vænti jeg, að hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) skiljist, að ekki megi leggja svo mikinn þunga á þennan atvinnuveg, að hann fái ekki af borið. Jeg segi þetta ekki af því, að jeg hafi hag af síldveiðum. Jeg er enginn útgerðarmaður. En jeg er tollheimtumaður og myndi hafa hag af því, ef tollurinn væri hækkaður, og má því segja, að jeg sje að berjast gegn hagsmunum mínum.
Á Ísafirði er þessi atvinnuvegur þriggja ára gamall. 1916 var ágætisár, en 1917 og 1918 voru neyðarár, og mun síldarútvegurinn hvergi ver staddur en á Ísafirði.
Það hefir löngum kveðið við hjer í hv. deild, að það eigi að leggja á þennan atvinnuveg af því, að menn sækist svo mjög eftir honum. En þetta er ekki nema yfirborðsástæða. Athugandi er hvernig stendur á því, að menn sækjast eftir þessum atvinnuvegi. Það má ekki eingöngu byggja á ástandinu nú, heldur verður einnig að taka tillit til fyrri ára.
Það er vitanlegt, að síldin er og hefir verið gullnáma, og eins og mönnum er kunnugt, er gullsóttin í mönnunum óstöðvandi. En samt er nú svo komið, að enginn atvinnuvegur er háskalegri en einmitt gullnámurekstur. Gullnámur eru nú nálega eingöngu reknar af stóreignafjelögunum, sem hafa yfir hundruðum miljóna að ráða. Fyrir fátæklinga er gullnám einhver rýrasti og misjafnasti atvinnuvegur. — Það er heldur ekki eingöngu af því, að síldveiðin sje svo framúrskarandi arðvænleg, að hún er stunduð. Á sumrin eru botnvörpuveiðar yfirleitt mjög magur atvinnuvegur, og hafa því margir botnvörpuútgerðarmenn tekið það ráð, að nota fólk sitt og skip til síldveiða þennan tíma, heldur en láta það standa aðgerðalaust. Botnvörpungaeigendur hafa sagt mjer, að í meðalári sje engan hagnað af síldveiðinni að hafa. Það eru því nú aðallega mótorbátar, sem stunda þessa veiði. Á Ísafirði stunda allir mótorbátarnir síldveiði á sumrin, því lóðaveiðin hefir eigi þótt borga sig þennan tíma.
Eitt af því, sem athuga þarf, þegar á að fara að skattleggja þessa veiði, er verðið á síldinni. Jeg hefi spurt hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) um það, en ekkert svar fengið. Jeg hefi sömuleiðis gert fyrirspurn til fjármálaskrifstofunnar, en hún gat heldur engar upplýsingar gefið. Verðið er því enn ósýnt.
Viðvíkjandi hinum hækkaða framtíðarskatti benti hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) á, að tunnurnar ættu að lækka í verði, en hæstv. fjármálaráðherra sjer hjer ekki köttinn í tunnunni, sem sje að á stríðsárunum hafa verið uppgangstímar, en nú þvert á móti, og þó að tunnurnar lækki eitthvað í verði, er engin ástæða til að ætla, að kaupgjaldið lækki, eða að síldin haldist í góðu verði. Jeg álít afar varhugavert að gera skattinn að framtíðarskatti. Þarf jeg eigi annað en benda á árið 1916–17, er þungar tekjur voru til að taka skatt af.
Háttv. þm. Ak. (M. K.) sagðist vel, er hann lagði til, að skatturinn yrði hækkaður í ár, en lagði á móti framtíðarskatti. En þótt háttv. þm. Ak. (M. K.) og jeg ef til vill greiðum atkvæði með 2 kr. skatti, er það eigi af því, að við sjeum því samþykkir. heldur gerum við það nauðugir og eingöngu til að afstýra verra böli.
Jeg get ekki betur sjeð en að þessi skattur sje á móti öllum skattareglum hæstv. fjármálaráðherra. Hann hefir áður lýst yfir því, að hann væri á móti öllum óbeinum sköttum (Fjármálaráðh.: Hefi aldrei sagt það), en þó sjerstaklega útflutningsgjaldi. En þetta, sem hjer er farið fram á, er versta tegund af óbeinum sköttum.
Eina ástæðan, sem komið hefir fram þessum skatti til stuðnings, er að landssjóður geti ekki án hans verið. Þykist hæstv. fjármálaráðherra (S. E ) hafa sýnt fram á, að svo sje, en mjer virtist ræða hans fremur löguð til þess að villa mönnum sýn en skýra þetta atriði. Jeg skoðaði hana sem einskonar veiðibrellu til að fá hv. þingmenn til að veita landssjóðnum altaf meiri og meiri tekjur. Jeg segi þetta alls eigi til lasts hæstv. fjármálaráðh. (S. E.), því jeg tel það fremur kost, að hann vill ná peningum í landssjóðinn En jeg fyrir mitt leyti get ekki sjeð, að nokkur þörf sje á þessum tekjuauka. Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) vildi kenna það íhugunarleysi mínu, en það er nefndarskylda mín að íhuga fjárhag landsins, og þykist jeg hafa gert það töluvert nákvæmlega.
Eftir áætlun minni eru allar líkur til, að með þeim tekjuauka, sem nú gengur í gildi, verði að minsta kosti unninn upp allur tekjuhallinn á árinu 1919, ef eigi verður tekjuafgangur. Það hefir mikið verið gert úr tapi því, sem landssjóður hafi orðið fyrir á saltkaupum landsverslunarinnar og kolakaupum; en mjer finst vera búið að troða rækilega upp í þau göt.
Líti maður á fjárlögin næstu, þykist jeg alls ekki reikna of hátt, þó jeg áætli, að tekjur landssjóðs verði á næsta fjárhagstímabili 2 miljónum kr. hærri en áætlað er þar; án þess þó að taka tillit til tekjuauka þess, sem nú er farið fram á. En hann mun nema nær 2 miljónum króna, svo eftir því hækkuðu tekjur landssjóðs um 50%. Býst jeg ekki við, að fjárhagsfrv. landsstjórnarinnar sje svo fráleitt, að alls þessa þurfi.
Hæstv. fjármálaráðherra vildi gera lítið úr skattatillögum mínum. Fanst honum lítið til um vitagjaldið; en tekjur af því mundu þó nema einum 100 þús. krónum, og virðist það gjald koma öllu betur niður en síldarskatturinn. Auk þess mætti leggja á verðskatt, og væri það miklu rjettara, er búast má við, að allur varningur falli í verði
Svo er eitt atriði í þessu máli, sem eigi hefir verið tekið til athugunar. Óskar hv. þing þess, að þessi hæstv. stjórn syndi í peningum? Mjer er að vísu eigi vel kunnugt um þetta atriði, en jeg efast þó um að svo sje.
Hjer er verið að leggjast á innlendan atvinnuveg, sem er að skapast. Býst jeg við, að það stafi af því, að mönnum finnist hann skaðlegur. En fátt er svo með öllu ilt, að ekki boði nokkuð gott. Háttv. þm. Ak. (M. K.) hefir bent á, að síldin hefir stuðlað til að hækka kaup verkamanna, svo þeir gætu komist af í dýrtíðinni. Auk þess er kjöt nú orðið svo dýrt, að fáir hafa efni á að hafa það á borðum: að minsta kosti er embættismönnunum það ofvaxið; en síld er ágætismatur, og þó þjóðin sje eigi alment komin upp á að borða hana, kæmi mjer eigi á óvart, þó hún að fáum árum liðnum yrði borðuð á hverju einasta heimili. Auk þess er síld einhver hinn besti fóðurbætir og afurðir hennar landbúnaðinum beinlínis nauðsynlegar sem áburður, meðan eigi er farið að vinna fossana. Þróist þessi atvinnuvegur, eru líkur til að hann geti orðið landbúnaðinum hin næsta hjálparhella.
Hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) sagðist hafa komið fram með ábúðarskattinn til að koma á jafnvægi milli landbúnaðarins og sjávarútvegs. — Jeg varð satt að segja hissa þegar jeg heyrði þetta. Ábúðarskatturinn er um 40 þús. kr., en síldarskatturinn á 2. miljón. Á þetta að kallast jafnvægi? Þar að auki býst jeg ekki við, að hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) sje maður fyrir að koma því frv. í gegnum þingið.
Hvað snertir að landssjóður þurfi miklar tekjur, vil jeg að eins benda á, að hæstv. fjármálaráðh. (S. E.) hefir beinlínis varað bændurna við að láta leggja skatt á landafurðir. Ef hann hefði stutt málið að sama skapi og hann vann á móti því, er eigi ósennilegt, að það mál hefði gengið í gegn.
Það hefir löngum brunnið við, að bændur hafa eigi viljað vera undir sömu lögum og útgerðarmenn. En þó hafa trúnaðarmenn bændastjettarinnar sagt mjer, að þeim hafi verið mjög mislagðar hendur, er þeir drápu frv. um útflutningsgjald af landbúnaðarafurðum.
Það hefir löngum kveðið við, að bændurnir væru svo fátækir. En jeg held, að mjer sje óhætt að fullyrða, að almenn velmegun sje langtum meiri í sveitum en við sjó. Þetta má sjá á sveitarreikningunum. Jarðarverðin hafa hækkað geysilega, og bændur leggja nú svo 100 þúsundum króna skiftir í togara. Í sveitunum eru veðsetningar hverfandi, en svo má heita, að hver kofi við sjó sje veðsettur.
Að endingu skal jeg minnast á það, sem hæstv. fjármálaráðh. sagði, að síldarskatturinn kæmi að miklu leyti niður á útlendingum. — Jeg er hræddur um, að svo geti farið, að þessi skattalöggjöf verði einmitt til þess, að við náum engum peningum af útlendingum. Það er þegar farið að brydda á því, að þeir fiska síld í landhelgi, þar sem vitanlega er engin strandgæsla hjer við land, sem því nafni má nefna, og fara svo beina leið heim til sín með veiðina. Mætti ætla, að þessi skattur mundi heldur stuðla að því, að sú aðferð yrði höfð.
Jeg held, að eigi sje vert að styðja á stjettaríg í landinu, heldur beri öllum framleiðendum að taka saman höndum, og það því fremur, sem landbúnaðurinn hefir stórfeld framfarafyrirtæki með höndum, sem þarf stórfje til að koma í framkvæmd. Jeg hygg því, að þeir fari mjög óhyggilega að ráði sínu, er vilja leggja allar byrðar á sjávarútveginn, en draga sjálfa sig undan öllum sköttum. Held jeg, að það muni koma þeim í koll áður lýkur.