11.08.1919
Efri deild: 27. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 771 í B-deild Alþingistíðinda. (454)
37. mál, útflutningsgjald af fiski, lýsi o.fl.
Frsm. meiri hl. (Halldór Steinsson):
Jeg þarf ekki að svara andmælum þeim, er komið hafa fram gegn áliti meiri hlutans, því þau hafa ekkert það hrakið, er tekið var fram í framsöguræðu minni.
Hv. þm. Ísaf.( M. T.), sem því miður ekki er viðstaddur, virðist taka hart á því, að jeg birti í deildinni, hverja skoðun hann ljet í ljós á máli þessu innan nefndarinnar og taldi það ekki eiga við, að birtar væru í þinginu skoðanir þær, er menn ljetu í ljós innan nefndar. Um þetta atriði er jeg honum sammála, enda hefði mjer ekki komið til hugar að birta hana, ef hann hefði ekki lýst henni yfir sjálfur utan nefndarinnar.
Þá var hv. þm. Ísaf. (M. T.) að fárast um það, að meiri hluti nefndarinnar hefði ekki tekið afstöðu til síðari hluta brtt. hans. En hún var ekki rædd í nefndinni og meiri hlutinn átti ekki kost á að sjá hana áður en hún fór í prentsmiðjuna.
Þá sagði hv. þm. Ísaf. (M. T.), að síldarútvegsmönnum færi fækkandi, þeir væru tilneyddir til að stunda þá atvinnugrein í sumar vegna tunnueignar, en myndu fegnir að losna næsta sumar; en sömuleiðis sagði hann, að atvinnuvegur þessi væri altaf að verða innlendari og innlendari. Er mikið samræmi í þessu?
Enn sagði háttv. þm. (M. T.), að margir bláfátækir menn stunduðu síldarútveg, en slíkt getur ekki staðist, því bláfátækir menn hafa yfirleitt ekki lánstraust til þess, þar sem útgjöldin eru mjög mikil samfara þessum útveg.
Þá taldi hv. þm. Ísaf. (M. T.) ríkissjóði ekki vera þörf á þessum skatti, þar sem tekjuafgangur á mesta fjárhagstímabili myndi verða um 2 miljónir króna. (M. T.: Hefi ekki sagt það). Jú, jeg hefi skrifað það niður. Jeg hygg þetta vera handahófsáætlun og meðan hv. þm. ekki sannar hana með tölum, vil jeg leyfa mjer að vefengja hann. Jeg gæti með meiri rökum sagt, að tekjuafgangur yrði enginn eða öllu fremur tekjuhalli.
En þó að tekjuafgangur yrði, væri þá svo mikill skaði skeður? Þurfum við altaf að búa við skuldir?
Hv. þm. Ak. (M. K.) talaði eins og sá maður, sem einn hefði vit á málinu. (M. K.: Ekki einn!) og kvað nefndina hafa skort þekkingu á málinu, og álasaði henni einnig fyrir fljótfærni.
Hvað síðara atriðinu viðvíkur, skal jeg taka það fram, að nefndin vann vandlega að málinu, en þó svo hefði verið, að okkur hefði skort þekkingu, var sú bót í máli, að við áttum kost á að afla okkur leiðbeiningar manna, sem jafnvel eru engir eftirbátar hv. þm. Ak. (M. K.) í slíkum málum.
Háttv. þm. hjelt því fram, að hættulaust væri að samþ. brtt. sína, þar sem næsta þingi væri í lófa lagið að hækka tollinn, ef það sýndi sig, að hann íþyngdi sjávarútveginum ekki um of. Ætli að ekki mætti með jafnmiklum rjetti snúa setningunni við og benda hv. deild á, að næsta þingi er á sama hátt í lófa lagið að lækka tollinn, þó nú sje farið eftir till meiri hlutans, of það sýnir sig, að sjávarútveginum verði um megn að bera hann.
Jeg skal svo ekki fjölyrða meira um þetta, að eins benda á, að prentvilla er í 3. gr., þar sem stendur 12. okt. 1912, í stað 22. okt. 1912.