12.08.1919
Neðri deild: 32. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í B-deild Alþingistíðinda. (470)

37. mál, útflutningsgjald af fiski, lýsi o.fl.

Fjármálaráðherra (S. E.):

Þetta frv. er, eins og háttv. deild er kunnugt, komið hingað frá háttv. Ed. eftir að hafa gengið þar í gegnum mikla eldraun. Aðalkjarni þess er síldartollurinn. Eftir till. stjórnarinnar var ætlast til, að sá tollur yrði 1 kr. á tunnuna í ár, en 3 krónur síðar. Hjer í deildinni var því breytt þannig, að 1 kr. tollinum á síldartunnu var haldið þetta ár, en frambúðartollurinn færður upp í 4 kr. Háttv. Ed. hefir hjer þrætt milliveg. Hún færir tollinn í ár upp í 2 krónur af tunnu, en framtíðartollinn niður í 3 kr., eins og var í frv. stjórnarinnar upphaflega, og stjórnin fellst að sínu leyti á þennan meðalveg, enda tek jeg það aftur fram, að síldartollurinn er aðalkjarni frv.

Jeg er háttv. fjárhagsnefnd hjer í deild þakklátur fyrir það, að hún vill ganga að frv. þrátt fyrir breytingarnar á því hjá háttv. Ed., því það liggja ríkar ástæður til þess, að frv. þetta sje samþykt sem allra fyrst. Jeg hefi nýlega talað við lögreglustjórann á Siglufirði, og kvað hann mörg skip vera að búa sig til brottferðar þaðan. Það getur því munað landssjóð tugi þúsunda kr., ef málinu verður nokkuð frestað.

Háttv. frsm. (M. G.) skaut því til stjórnarinnar, hvort hún mundi ekki sjá sjer fært að jafna útflutningstollinum á hestum niður á þá alla, sem útfluttir verða. Stjórnin mun taka þetta atriði til yfirvegunar, og fyrir mitt leyti mun jeg styðja að því, að svo verði.

Að endingu tek jeg það fram, að jeg mæli fast með því, að frv. sje samþ. óbreytt eins og það kom frá hv. Ed., því að verði hjer gerð breyting á því, svo að það verði aftur að fara til Ed., þá veit jeg ekki, hvort það muni sleppa klaklaust aftur gegnum þá nýju eldraun, er þess mun bíða þar. Þetta veit jeg að háttv. fjárhagsnefnd hefir skilið, og því hefir hún tekið í málið eins og háttv. frsm. (M. G.) skýrði frá.