30.07.1919
Efri deild: 18. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (486)
28. mál, hæstiréttur
Fjármálaráðherra (S. E.):
Jeg skal ekki vera langorður. Frv. þetta hefir alstaðar mætt mikilli ánægju. Um langt skeið hefir það verið ósk og þrá íslensku þjóðarinnar að fá æðsta dómstólinn fluttan inn í landið, og þessari ósk er fullnægt með frv. þessu, sem víst er um að gengur gegnum þingið.
Hv. 2. þm. G.-K. (K. D.), sem sjálfsagt er frv. fylgjandi — um það þarf enginn að efast, sem þekkir fortíð hans hjer á þingi — talaði þó um, að mál þetta myndi ef til vill verða betur undirbúið, ef því væri frestað til næsta þings.
Jeg verð þó að efast um þetta. Um frv. hafa fjallað þeir menn, sem mesta sjerþekkingu hafa til að bera í þessu efni, og undirbúningurinn er mjög góður.
Auðvitað má altaf deila um það, hversu mörg dómstigin eigi að vera. Sumir álíta tryggara að hafa 3 dómstig, en ef dómurinn er vel skipaður, álít jeg fulltrygt að hafa dómstigin 2.
Frá mínu sjónarmiði er enginn vafi á, að málaflutningurinn á að vera munnlegur.
Í því liggur opinber trygging, að alþjóð geti fylgst með aðgerðum dómsins.
Hitt get jeg skilið, að þeim, sem nú skipa yfirdóminn, muni þykja mikið að starfa í upphafi, en í brtt. við 53. gr. er tekið tillit til óska þeirra.
Mjer virðist allur frágangur á málinu frá stjórn og nefnd vera þannig úr garði gerður, að mjög mikill vafi sje á því, hvort nokkuð græðist á að fresta málinu.
Í öðrum löndum mun málaflutningur nálega alstaðar vera munnlegur við hina æðstu dómstóla.
Jeg vona, að hv. deild fallist á frv., og tel það skifta mjög miklu máli, að hæstirjettur komi sem allra fyrst inn í landið, því fáir munu óska þess, að önnur þjóð haldi áfram að dæma í málum vorum.