11.08.1919
Neðri deild: 30. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (505)
28. mál, hæstiréttur
Sigurður Sigurðsson:
Jeg er þakklátur hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) fyrir það, að hann studdi brtt. mína. Hann taldi fram margt, sem mælir með henni, og sýndi fram á, að hún er ekki einasta frambærileg, heldur er nauðsynlegt að samþykkja hana.
Jeg get nú ekki heldur sjeð, þótt svo mætti skilja orð hv. frsm. (E. A.), að nokkur vansæmd þurfi að vera að því, að flytja till. þessa, eða að hann þurfi að eigna mjer fyrir það einhvern sjerstakan hugsunarhátt, sem sje þessu máli öllu saman ósamboðinn.
Jeg skal í því sambandi benda á það, að í sambandslögunum er gert ráð fyrir, að hæstirjettur verði ekki stofnaður fyrst um sinn. Hjer er því ekki um neitt það að ræða frá minni hálfu, sem vansæmd sje að.
Þá vildi jeg minnast á það, sem hv. frsm. (E. A.) sagði um húsnæðið. Hann gat þess, að efni og tilkostnaður annar mundi ekki lækka á næstu tveimur árum.
Það getur hugsast, en er þó ekki víst. En hitt er víst, að ef hæstirjettur á að taka til starfa nú um nýár, þá verður stjórnin nú þegar að láta fara að laga húsnæði það, sem hann á að hafa, sem vera mun loftið í hegningarhúsinu. Að öðrum kosti verður það ekki tilbúið í tíma.
En það er gefinn hlutur, að hvort sem er nú strax eða í haust verður erfitt að fá menn til að starfa að því, nema með afarkostum.
Og það var einmitt það, sem jeg átti við, að hægara væri að sæta tækifæri, bæði með efni og vinnu, ef beðið væri, heldur en ef rokið er í þetta nú í hendingskasti.
Jeg er sannfærður um, eins og líka hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), að ef ráðist verður í þetta nú þegar, þá hlýtur það að kosta mikið, sjálfsagt miklu meira en hægt er að gera sjer hugmynd um í fljótu bragði.
Mjer hefir oft fundist, þegar um sjálfstæðismál er að ræða, að þá sjeu menn svo viðkvæmir, að ekki megi minnast á praktisku hliðina á þeim málum.
En fyr má nú rota en dauðrota.
Jeg er líka viðkvæmur fyrir okkar sjálfstæðismálum, en þó ekki svo, að jeg vilji ekki láta íhuga hinar hagkvæmlegu hliðar málanna, eins og vera ber.
Jeg vil því endurtaka það, að jeg tel mjer enga vansæmd í því, að hafa komið fram með till. þessa, því að praktiskar ástæður mæla með því, að hún verði samþ.
Fyrir málið sem sjálfstæðismál gerir það ekkert til, þótt það bíði 1–2 ár, en eins og jeg hefi sagt, getur það haft talsverða praktiska þýðingu.