18.08.1919
Efri deild: 33. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í B-deild Alþingistíðinda. (515)
28. mál, hæstiréttur
Frsm. (Jóhannes Jóhannesson):
Frv. þetta kemur hingað aftur óbreytt frá hv. Nd., að öðru leyti en því, að 42. gr. þess hefir verið breytt lítillega þar í deildinni og viðauka skotið inn í 48. gr., hvorttveggja eftir tillögum samvinnunefndar allsherjarnefnda beggja deilda.
Breytingarnar á 42. gr. eru tvær; önnur sú, að sá, er frávísun sakar vill krefjast, skuli tilkynna það hæstarjettarritara, í stað gagnaðilja, og hin er sú, að tilkynningin skuli fara fram viku áður en mál skal þingfesta, í stað 2 dögum áður eftir frv., eins og það fór hjeðan.
Viðbótin, sem skotið hefir verið inn í 48. gr., er þess efnis, að að eins skuli greiða hálf dómgjöld í málum, sem ekki nema 100 kr., og stendur sú breyting í sambandi við það, að summa appellabilis í stjórnarfrv. var 100 kr., en færð niður hjer í deildinni í 25 kr.
Jeg leyfi mjer fyrir hönd samvinnunefndarinnar að vænta þess, að hv. deild telji breytingar þessar til bóta og samþ. frv., helst í einu hljóði, eins og það nú liggur fyrir.