19.08.1919
Efri deild: 34. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í B-deild Alþingistíðinda. (533)

10. mál, húsaleiga í Reykjavík

Frsm. (Guðjón Guðlaugsson):

Þetta mál var svo að segja komið á síðustu tröppu þegar það var hjer síðast á ferðinni. En þá var það tekið út af dagskrá vegna ávarps, sem borist hafði þinginu frá yfir 600 mönnum í Reykjavík, — bæði húseigendum og öðrum — um það, að afnema húsaleigulögin, og þá auðvitað heldur ekki samþ. þetta frv. Síðan hafa um 60–70 manns bæst við á þetta skjal. Nefndin taldi þegar svona var komið, sjálfsagt að leita umsagnar þeirra, sem næst stæðu þessu máli og skrifaði þess vegna húsaleigunefndinni. En í svari sínu var hún algerlega mótfallin því, að afnema lögin, og meira að segja á móti því, að undanþiggja nýbyggingar, eins og komið hefir til mála í allsherjarnefnd.

Jeg hirði ekki um að rekja hjer allar ástæður húsaleigunefndar. Þær voru flestar veigalitlar, að mínu viti. Þó skal jeg drepa á það, að þess var þar getið, að flestar nýbyggingarnar mundu lenda í höndum braskara, sem geyma mundu þær utanbæjarmönnum, til þess að græða meira á þeim. Þetta húsabraskaraheiti er nú mjög notað, bæði í tíma og ótíma, en tæpast verður það notað í þessu sambandi, því varla eru það eintómir braskarar, þessir 6–700 menn, sem skrifað hafa undir áskorunina til þingsins. Nefndin hefir einnig skrifað borgarstjóra Reykjavíkur um málið og fengið frá honum svar í sama anda og svar húsaleigunefndarinnar. En þegar bæði þessi stórveldi hafa nú lagst svo ramlega á sveifina með lögunum, sá nefndin sjer ekki fært að gera neinar breytingar á þeim, en býst við, að þau verði samþ.

En jeg fyrir mitt leyti vil þó taka það fram, að jeg vil hafa mig undanþeginn allri þátttöku í þeim sálmasöng, sem kyrjaður hefir verið lögum þessum til lofs og dýrðar. Því mjer þykir leitt, hvernig máli þessu er komið, og það ekki síst sakir þess, að svo má segja, að þar sje að eins um að kenna því, að of lítið eða ekkert hafi verið til þess reynt af beggja hálfu að koma á málamiðlun. Því jeg játa það fúslega, að kann ske hefði það verið varhugavert að afnema húsaleigulögin nú alveg í einu. En hitt finst mjer þó engu minni fjarstæða, að ætla að herða á þeim einmitt nú, því það er alkunnugt, að þau voru í öndverðu að eins bráðabirgðarráðstöfun vegna stríðsins, og var því ætlað að falla úr gildi þegar því ljetti af. Yfirleitt held jeg að segja megi, að báðir málsaðiljar hafi skotið yfir mark. — Það hefir verið hert á þessari hengingaról húseigenda — lögin hafa verið gerð ósanngjarnari, í stað þess, að það átti að gera þau sanngjarnari. Og það eru alls ekki húseigendur einir, sem eru þeirrar skoðunar, að lögin sjeu ósanngjörn. Jeg hefi hitt ýmsa leigjendur, t. d. fátæka verkamenn, sem heldur hafa hallmælt þeim og sagst vera óvissir um það, hvort þau hefðu gert nokkuð gagn — hvað þá heldur um það, hvort þau mundu gera það hjer eftir.

Jeg vænti þess nú, að hæstv. stjórn athugi þetta mál vel, og afnemi síðan lögin svo fljótt, sem unt er — jafnvel þó svo færi, að setja yrði bráðabirgðalög aftur — því við þetta mundi að minsta kosti skapast reynsla um það, hvernig ástandið yrði með og án laganna.

En jeg fyrir mitt leyti er sannfærður um það, að alt þetta ástand um húsnæðisleysið mundi batna ef lögin væru sanngjarnari.

Því það er vitanlegt, að fólki fjölgar ekki í bænum, þó ein íbúð sje losuð og fólkið flytjist annað. Það væri þá helst, að losnaði um fólk, sem enginn vildi hafa — en það er sannast að segja um slíkt fólk, að það er fullmikið lagt í sölurnar fyrir það, að taka eignar- og umráðarjett húsakynnanna af öllum öðrum fyrir það.

Annars má minna á það — þó nefndin hafi auðvitað verið upp úr því vaxin að taka slíkt til greina — að orðrómurinn, sem gengið hefir um bæjarstjórn og húsaleigunefnd í sambandi við þetta mál, er alt annað en fagur, oft og einatt. Það er t. d. sagt, að borgarstjóri búi sjálfur í leiguíbúð hjá sjer fátækari manni, og borgi ekki ofmikið og það er sagt, að húsaleigunefndin vilji gjarnan hjara sem lengst, til þess að fá aurana.

En yfirleitt mun það vera satt, að ýmsir stórefnamenn noti húsaleigulögin hjer sem skálkaskjól, til þess að sitja sem fastast í leigulágum íbúðum, — sem fátækir eigendur þurfa kann ske að nota — til þess að spara sjer byggingarkostnað í dýrtíðinni, og vilja heldur vinna til að eiga í sífeldu karpi og kerlinganöldri á báða bóga en bæta úr húsnæðiseklunni með því að byggja, þó einmitt þeir væru manna færastir til þess.

Jeg er, að endingu, ekki með lögunum, en sje að það muni ástæðulaust að spyrna á móti þeim.