11.08.1919
Neðri deild: 30. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í B-deild Alþingistíðinda. (567)
14. mál, stofnun Landsbanka
Hákon Kristófersson:
Jeg þarf að leiðrjetta nokkur atriði í ræðu hv. frsm. (M. G.), og skal vera stuttorður. Hann byrjaði með að rengja það, sem jeg sagði við fyrri umr. málsins, og þótti mjer leitt hans vegna, að hann fór þar með ósannindi. Hvað snertir 5. brtt. mína við 8. gr., þá lít jeg svo á, að þessi sjóðsstofnun eigi að eins að ná til bankans, en ekki til útibúanna. Enn fremur lít jeg svo á, að hjer sje að eins að ræða um styrk til þeirra manna, sem þurfa styrks í raun og veru, en annara ekki.
Þá mintist hv. frsm. (M. G.) á, að jeg væri í óþægilegri kreppu, þar sem væru till. við 5. gr. á þgskj. 268 og 269. En jeg get alls ekki litið svo á, að jeg sje þar í nokkurri kreppu. Jeg hefi lýst því yfir, að jeg hallaðist frekar að launahækkunarbrtt. á þgskj. 268, en ef hún yrði feld, mundi jeg greiða atkvæði með launahækkuninni á þgskj. 269. Svo hjer er um enga mótsögn að ræða.
Eitthvað var hv. 2. þm. Árn. (E. A.) að tala um, að jeg væri farinn að sýna undarlegan höfðingsskap í fjármálum, og virtist furða sig þar á sanngirni minni. En nær veit hv. þm. (E. A.), að jeg hafi lagt nokkuð annað til mála en það, sem sanngirni hefir verið í? Jeg býst við, að hv. 2. þm. Árn. (E. A.) sje mjer sammála í því, að till. mínar í þessu máli stuðli eindregið að því, að til stofnunar þessarar veljist svo starfhæfir menn, sem unt er. En fyrsta sporið í þá átt er að gera kjörin svo úr garði, að vel sje viðunandi.