25.08.1919
Efri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í B-deild Alþingistíðinda. (575)

14. mál, stofnun Landsbanka

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Í nál. er tekið fram, hvaða breytingar frv. geri á núverandi fyrirkomulagi.

Fjárhagsnefnd gat ekki orðið alveg sammála. Einn nefndarmanna undirritaði nál. með fyrirvara, og hefir hann nú komið fram með brtt. við það. — Þar sem jeg álít brtt. þá, sem fram komin er, ekki til bóta og veit, að formaður fjárhagsnefndar er sömu skoðunar, vil jeg fyrir hönd nefndarinnar leyfa mjer að leggja til, að brtt. verði feld og frv. samþ. óbreytt.