25.08.1919
Efri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (584)

14. mál, stofnun Landsbanka

Fjármálaráðherra (S. E ):

Háttv. þm. Ísaf. (M. T.) gaf í skyn, að jeg hefði hagað orðum mínum eins og jeg væri beiningamaður, er jeg leitaði til Íslandsbanka um lán. Jeg sagði, að Landsbankinn væri því miður eigi svo öflugur, að hann gæti veitt landinu þau lán, sem það þyrfti, og því hefði jeg orðið að biðja Íslandsbanka um lán. Hvernig hv. þm. (M. T.) kemur hjer beiningamanninum að er mjer hreinasta ráðgáta, en hann um það. Hefði Landsbankinn verið nægilega öflugur, hefði leitt af sjálfu sjer, að stjórnin hefði fengið öll sín lán þar, enda væri henni það langtum kærara.

Hv. þm. Ísaf. (M. T.) sagði, að Íslandsbanki væri skyldugur að lána landinu fje. Lagalega er hann alls eigi skyldugur til þess, og sje honum af einhverjum ástæðum illa við að veita lán, getur hann altaf fengið einhverja átyllu til að losna við það, t. d. sagt, að bankinn hafi ekkert fje handbært o. s. frv.

Það virðist svo, sem hv. þm. Ísaf. (M. T.) gangi út frá því sem sjálfsögðu, að landsstjórnin geti altaf fengið lán í hvaða banka sem vera skal. En mjer er kunnugt um, að erlendar stjórnir hafa oft átt fult í fangi með að fá nauðsynleg lán. (K. D.: Hvaða stjórn?) Jeg er eigi skyldugur til að nefna nein dæmi, en ef hv. þm. (K. D.) hefði fylgst með í erlendum blöðum, þá hlyti hann að hafa rekið sig á þetta.

Stjórninni tókst í þetta skifti að fá 4½, milj. kr. lán í Danmörku; meira var ekki hægt að fá. Skal jeg geta þess, bankastjóra Tofte til maklegs lofs, að hann studdi eftir megni að því, að lánið fengist, og var framkoma hans öll í því máli sú, að auðsjeð var, hvað honum var ant um hag landsins.

Jeg er sammála hv. þm. Ísaf. (M. T.) um, að það eigi að styrkja Landsbankann, en jeg get ekki sjeð, að aðstaða hans verði neinu verri, þó brtt. verði samþykt. Við höfum orð hæstv. atvinnumálaráðherra og fleiri manna fyrir því, að mestur hluti fjárins muni lenda hjá Landsbankanum; að eins örlítill hluti hjá Íslandsbanka. Get jeg ekki skilið, að framtíð bankans velti á því, hvort þetta verður samþykt eða eigi. En mjer finst þetta meira „taktiskt“ spursmál.

Ef hnúturnar til mín eiga við frv., sem felt var í Nd., og talið var til þess lagað að særa Landsbankann ólífissári, vísa jeg þeim algerlega frá mjer, því mjer var aldrei verulega um það frv. og var sama, þó það fjelli; en ef átt er við brtt. þá, sem hjer er farið fram á, verð jeg að játa, að jeg skil þær ekki, því með henni er ekki á nokkurn hátt veist að Landsbankanum. En nú kemur bráðum ný stjórn og nýr fjármálaráðherra (M. T.: Er það nú víst?), og verður gaman að sjá, hvar hann tekur lánin. Meðan jeg er í stjórninni mun jeg að sjálfsögðu reyna, eins og unt er, að láta Landsbankann sitja fyrir því, að veita stjórninni lán.